Innlent

Ótímabært að leyfa staðgöngumæðrun

Siðferðilegum, lagalegum og læknisfræðilegum spurningum varðandi staðgöngumæðrun hefur ekki verið svarað nægilega vel. Þær þarf að leiða til lykta með gagnrýninni og opinni umræðu á sem flestum sviðum samfélagsins.

Þetta kemur fram í umsögnum um þingsályktunartillögu um að heimila staðgöngumæðrun hér á landi. Fimmtán umsagnir hafa borist heilbrigðisnefnd Alþingis vegna málsins. Tvær þeirra fagna tillögunni.

Í umsögn Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands segir að siðferðileg álitaefni séu óvenjulega flókin og margræð í þessu máli því þau snerti móðurhlutverkið, yfirráðarétt kvenna yfir líkömum sínum og viðkvæm tengsl foreldra og barna. Stofnunin leggst gegn því að heimila staðgöngumæðrun án mun umfangsmeiri umræðu og umhugsunar. Hraðinn sem sé á málinu sé með öllu óforsvaranlegur og bjóði hættunni heim.

Bent er á í umsögnum að erfitt hafi reynst að greina á milli staðgöngumæðrunar í hagnaðar- og velgjörðarskyni. Barnaheill telja að staðgöngumæðrun geti haft í för með sér að farið verði að líta á börn sem söluvöru, og sama geti gerst varðandi staðgöngumóður. Þannig geti skapast möguleiki á að kúga konur til að selja aðgang að líkama sínum á nýjan og enn alvarlegri máta en þekkst hefur. Siðfræðistofnun segir tilhneigingu hafa verið til markaðsvæðingar og Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af því að þetta leiði til þess að litið verði á börn sem söluvöru.

„Þá er vert að undirstrika að nágrannalönd okkar, svo sem Norðurlöndin, heimila ekki staðgöngumæðrun og því ljóst að við munum marka stefnu á þessu sviði sem litið verður til,“ segir í umsögn stofnunarinnar. Í sama streng tekur Rauði kross Íslands, og Mannréttindaskrifstofa Íslands segir að stjórnvöld hljóti að bera sig sérstaklega saman við Norðurlöndin.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×