Innlent

Ekki hróflað við áfengiskaupaaldri

Í ríkinu Áfram þarf fólk að hafa náð tuttugu ára aldri til að mega kaupa sér vín.fréttablaðið/pjetur
Í ríkinu Áfram þarf fólk að hafa náð tuttugu ára aldri til að mega kaupa sér vín.fréttablaðið/pjetur
Í bígerð er að breyta lögum um verslun með áfengi og tóbak og leggja fram nýja áfengisstefnu stjórnvalda. Undirbúningur er á lokastigi.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er, að svo stöddu, hvorki áformað að heimila áfengisauglýsingar né lækka áfengiskaupaaldurinn.

Ráðist er í lagabreytinguna og mótun nýrrar áfengisstefnu að undangenginni vinnu starfshóps fjármálaráðherra um heildarendurskoðun áfengislöggjafarinnar. Starfshópurinn skilaði skýrslu fyrir rúmu ári. Helstu niðurstöður hans voru að gildandi löggjöf og markmið hennar endurspegluðu ekki framkvæmd og viðhorf til áfengismála.

Í skýrslunni kom fram að í áfengisstefnu stjórnvalda hefði almennt verið miðað við að draga ætti úr neyslu áfengis. Taldi hópurinn svo víðtækt markmið óheppilegt og ekki í góðu samræmi við framkvæmd áfengismála. Á Norðurlöndunum væri stefnan fyrst og fremst að draga úr skaðlegri neyslu áfengis. Var mælt með að sú stefna yrði mörkuð hér.

Starfshópurinn taldi þörf á endurskoðun áfengiskaupaaldursins í samræmi við önnur réttindi. Í skýrslu hans sagði meðal annars að svo virtist sem foreldrar veigruðu sér við að banna áfengisneyslu eftir átján ára aldur og að samfélagið virtist hafa samþykkt að í lagi væri að neyta áfengis við þau aldursmörk þótt lög kvæðu á um annað. Hvað sem því og öðru liði hnigju einnig rök til þess að halda í núverandi fyrirkomulag. Ef ætlunin væri að halda í núverandi aldur þyrfti að samræma lögræðisaldur og leyfilegan aldur inn á vínveitingastaði við áfengiskaupaaldur.

Að mati starfshópsins er óraunhæft að ætla að hægt sé að koma algjörlega í veg fyrir auglýsingar áfengis. Lagði hann til að heimila bæri slíkar auglýsingar með miklum takmörkunum. Slíkt væri í samræmi við reglur flestra Norðurlandaþjóðanna og gerði eftirlit skilvirkara og eyddi réttaróvissu.

Starfshópurinn taldi enn fremur óæskilegt að afnema einkasölu ríkisins á smásölu áfengis; þvert á móti ætti að styrkja stöðu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×