Lífið

Sýnir fyrir 400 hákarla í kvikmyndabransanum

Lokaspretturinn Þorvaldur Davíð þarf að standa á sviði frammi fyrir fjögur hundruð hákörlum í bransanum, bæði í New York og Los Angeles. Hann frumsýnir innan skamms óperu í Juilliard-leikhúsinu sem gerist á Íslandi.Fréttablaðið/Arnþór
Lokaspretturinn Þorvaldur Davíð þarf að standa á sviði frammi fyrir fjögur hundruð hákörlum í bransanum, bæði í New York og Los Angeles. Hann frumsýnir innan skamms óperu í Juilliard-leikhúsinu sem gerist á Íslandi.Fréttablaðið/Arnþór
„Þetta er byggt upp á tveggja manna senum og er svona aðaldæmið á lokaárinu,“ segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson leiklistarnemi. Hann er á lokaári sínu í Juilliard-háskólanum í New York og fram undan eru því síðustu dagarnir í skóla.

Einn hluti af náminu er sýningarvettvangur þar sem útskriftanemarnir láta ljós sitt skína frammi fyrir hákörlunum í bransanum.

„Þetta er bara hluti af náminu og fylgir starfinu. Annar helmingurinn er list en hinn bisness.“

Hátt í fjögur hundruð umboðsmenn og svokallaðir „casting directors eða leikarastjórar mæta á þessar sýningar í bæði Los Angeles og New York. Þeir mæla útskriftarnemana út, meta hverjir muni eiga upp á pallborðið og hverjir ekki.

„Við byrjum 4. apríl hérna í New York og fljúgum síðan til Los Angeles tveimur vikum seinna. Síðan eru einhver fundahöld í kringum þetta og annað slíkt.“ Þorvaldur vill þó ekki gera of mikið úr þessum sýningum, segir þetta svipað og aðrir háskólar geri fyrir sína nemendur; þeir reyni að mynda brú milli atvinnulífsins og skólans.

„Út á þetta gengur þetta, að koma sér á framfæri og mynda tengsl.“

Þorvaldur hefur verið að leika í nokkrum sýningum á vegum skólans og segist hafa fundið fyrir smá áhuga á sér. Hann hefur átt nokkra fundi með umboðsmönnum, án þess þó að vera með neitt fast í hendi.

Hann býst allt eins við því að ílengjast í New York eftir að námi lýkur, hann segir að sér líði vel í Stóra eplinu og hann er búinn að trúlofast kærustu sinni, Hrafntinnu Viktoríu.

Þorvaldur þarf reyndar að koma heim til Íslands á þessu ári því hann leikur Stebba sækó í kvikmyndinni Svartur á leik. Og svo er hann að fara að frumsýna óperu í Juilliard-leikhúsinu.

„Hún gerist reyndar á Íslandi í kringum 1890. Ég samdi handritið og vinur minn í skólanum sér um tónlistina.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×