Innlent

Margfalt meira af marijúana

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Lögregluembættin á Norðurlandi lögðu hald á rúmlega eitt kíló af marijúana á síðasta ári sem er mun meira en árin þar á undan.

Árið 2009 voru haldlögð rúmlega 100 grömm og 30 grömm árið 2008.

Þarna er því um mikla aukningu að ræða en þó í takt við það sem lögreglan er að sjá gerast í fíkniefnaheiminum hér á landi.

Magn annarra haldlagðra fíkniefna er svipað á milli undanfarinna ára, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu, sem minnir á fíkniefnasímsvarann 800-5005 og netfangið [email protected]. Þar getur fólk komið ábendingum um fíkniefnamisferli nafnlaust á framfæri.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×