Innlent

Íslenskar útgerðir á umdeildu hafsvæði

Þorsteinn Már Baldvinsson
Þorsteinn Már Baldvinsson
Íslensk útgerðarfyrirtæki hafa um árabil stundað fiskveiðar á umdeildu hafsvæði út frá ströndum Vestur-Sahara. Evrópusambandið (ESB) hefur löngum haft veiðiheimildir á svæðinu í krafti samnings við Marokkó, sem hefur stjórnað Vestur-Sahara frá árinu 1975 í óþökk flestra landsmanna og ýmissa ríkja og alþjóðastofnana.

Samningur ESB og Marokkó, sem útilokar ekki að veitt sé á landgrunni Vestur-Sahara, rennur út í lok mánaðar, en sjávarútvegsráðherrar ESB samþykktu á fundi á mánudag að ganga til samninga við Marokkó á ný. Þar var ekki minnst á stöðuna í Vestur-Sahara.

Ekki var þó einhugur meðal aðildarríkja því að Svíþjóð, Danmörk og Bretland kusu gegn því að ganga til samninga við Marokkó, og Þýskaland og Finnland sátu hjá.

Um er að ræða hagsmunamál fyrir ESB þar sem ellefu aðildarríki stunda veiðar innan svæðis Marokkó, þar með talið á hafsvæði Vestur-Sahara.

Í gegnum árin hafa íslensk útgerðarfyrirtæki haslað sér völl á hafsvæðinu út frá vesturströnd Afríku og sum þeirra á hafsvæðinu umdeilda.

Þeirra á meðal er Sæblóm, sem var með mikil umsvif í borginni Laayoune, en er nú gjaldþrota. Einn af fyrrum forsvarsmönnum Sæblóms, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði í samtali við Fréttablaðið að hann hafi vitað af deilum, en hafi sjálfur ekki orðið var við þær á sínum tíma.

Þá voru skip frá Samherja á umræddu svæði við veiðar á makríl, hestamakríl og sardínu. Heildarafli síðasta árs var 60.000 tonn, en Samherjaskip hafa hins vegar ekki verið þar síðustu mánuði, að sögn forstjórans Þorsteins Más Baldvinssonar.

Í samtali við Fréttablaðið segir Þorsteinn Már að þó að málið sé pólitískt umdeilt séu fjölmargir að veiðum á svæðinu. Skip Samherja hafi verið þrjú talsins fram á síðasta ár og bæði veitt úr kvóta ESB og samkvæmt samningi við stjórnvöld í Marokkó.

Spurður hvort þeir hygðu á frekari veiðar á svæðinu í framtíðinni sagði Þorsteinn að málið væri í skoðun.

Hann sagði deilurnar ekki munu hafa áhrif á framtíðarstefnu Samherja á svæðinu.

„Nei. Við erum ekki að blanda okkur í innanríkismál."

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×