Jól

Með sínum heittelskaða á jólunum

„Ætli það séu ekki bara fyrstu jólin okkar Reynis án þess að ég fari eitthvað nánar út í það," svarar Elma Lísa Gunnarsdóttir spurð út í eftirminnileg jól.
„Ætli það séu ekki bara fyrstu jólin okkar Reynis án þess að ég fari eitthvað nánar út í það," svarar Elma Lísa Gunnarsdóttir spurð út í eftirminnileg jól.

„Það er allur gangur á því. Ég er voða lítið með einhverjar hefðir. En maður skreytir alltaf og gerir kósý heima," segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona spurð um jólahefðirnar á hennar heimili og bætir við:

„Ég, Reynir og Una, fósturdóttir mín, skreytum jólatréð saman. Ég bakaði í fyrra og það var gaman og gefandi."

Hvað kemur þér í jólagírinn? „Nú til dæmis að baka og finna ilminn og hlusta á klassísk jólalög. Fara í göngutúr með sínum heittelskaða og vera með Unu, - hún er svo skemmtileg."

„Við ætlum að vera tvö saman heima hjá okkur þar sem að Una okkar er í útlöndum," útskýrir Elma Lísa spurð með hverjum og hvar hún eyðir aðfangadagskvöldinu í ár.

„Góða bók eða gott ilmkerti og ást og hlýju," segir hún að lokum þegar við forvitnumst hvað hana langar í jólagjöf. [email protected]






×