Innlent

Fjórir dómarar við Hæstarétt vanhæfir

Hæstaréttardómarinn Árni Kolbeinsson hefur lýst sig vanhæfan til setu í landsdómi í máli Geirs H. Haarde. Viðar Már Matthíasson, dómarinn með stystan starfsaldur, tekur sæti hans.

Árni var ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu í tæp tvö ár í tíð Geirs sem fjármálaráðherra. Að sögn Þorsteins Jónssonar, skrifstofustjóra Hæstaréttar, telur Árni þá staðreynd, og það að þeir Geir hafi almennt átt töluvert saman að sælda, til þess fallna að hægt yrði að draga hæfi hans í efa. Því hafi hann lýst sig vanhæfan.

Lög um landsdóm kveða á um að í dómnum skuli sitja þeir fimm hæstaréttardómarar sem lengstan starfsaldur hafa. Þegar Árni lýsti sig vanhæfan þurfti því að ganga á röð þeirra sem eftir voru til að finna þann næsta í starfsaldursröðinni.

Fyrstur þeirra var Jón Steinar Gunnlaugsson. „Ég tel miklar líkur á að góður vinur minn, sem heitir Davíð Oddsson, verði kallaður sem vitni í þessu máli. Það er eitt af hlutverkum dómara í dómsmálum að meta vitnaframburði og þá tel ég að það gæti verið ástæða til að efast um hlutlægni mína við að meta þann vitnisburð," segir Jón Steinar. Því hafi hann lýst sig vanhæfan, þótt enginn vitnalisti liggi enn fyrir.

Næstur var Ólafur Börkur Þorvaldsson. Hann upplýsti í samtali við Fréttablaðið í gær að hann hefði einnig lýst sig vanhæfan vegna tengsla við Davíð. Þeir eru náfrændur.

Sá þriðji var Páll Hreinsson. Hann gat ekki tekið sæti í dómnum, enda byggir málið á hendur Geir á niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis sem hann átti sæti í.

Þá var Viðar einn eftir. Hann tekur því sæti Árna í landsdómi. Ögmundur Jónasson skipaði hann hæstaréttardómara 9. september síðastliðinn.

Landsdómur fundar í fyrsta sinn í dag. Fyrir honum liggur að ákveða hvort Geir megi koma að kröfum í málinu fyrir héraðsdómi, þar sem saksóknari Alþingis stendur nú í máli gegn Þjóðskjalasafni um afhendingu gagna. Geir vill fá að krefjast frávísunar málsins strax, en héraðsdómur hefur hafnað því. Það kærði Geir til landsdóms. [email protected]

 

Jón Steinar Gunnlaugsson
Ólafur Börkur Þorvaldsson
Páll Hreinsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×