Viðskipti innlent

Steingrímur vill selja hluta Landsbankans gegnum Kauphöllina

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, telur æskilegt að einhver hluti ríkisbankans Landsbankans verði seldur almenningi í gegnum Kauphöll Íslands. Þá telur Steingrímur rétt að selja eignarhluti ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka gegnum Kauphöllina.

Íslenska ríkið á sem stendur 13 prósenta hlut í Arion banka og 5 prósenta hlut í Íslandsbanka. Þá á ríkið 81,3 prósenta hlut í Landsbankanum, en það er Bankasýsla ríkisins sem heldur utan um þessar eignir.

Í fyllingu tímans verða hlutir ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka seldir. Rætt hefur verið um að skynsamlegt sé að gera það í gegnum Kauphöll Íslands.

Frumskráning á Högum stendur yfir og það var mikil umframeftirspurn eftir bréfum í fyrirtækinu, sem gæti verið vísbending um að traust á hlutabréfamarkaðnum sé að aukast. Er ekki æskilegt að selja þessa litlu hluti ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka í gegnum Kauphöllina? „Það getur vel farið svo, þegar bankarnir verða sjálfir komnir í stand til þess og vilja skrá sig á markað," segir Steingrímur.

Hvenær heldur að það verði? „Vonandi sem fyrst. Ég held að efnahagsreikningar þeirra séu að styrkjast og verða hreinni. Maður hefur bundið vonir við að á næsta ári yrði skuldaendurskipulagningu og afskriftum að mestu lokið og kannski fleiri mál komin á hreint sem varða stöðu bankanna. Þegar Fjármálaeftirlitið gæfi grænt ljós á greiðslu arðs þá gefur maður sér að það yrði vegna þess að FME teldi efnahagsreikninga þeirra orðna trausta og þeir eytt að mestu óvissunni varðandi sitt eignasafn með endurskipulagningu skulda og svo framvegis."

Það er þín framtíðarsýn að þetta fari í gegnum Kauphöllina? „Það væri mjög æskilegt. (...) Varðandi Landsbankann væri mjög spennandi að hann yrði skráður og það gæti verið leið til þess að setja einhver bréf af honum í umferð," segir Steingrímur. [email protected]


Tengdar fréttir

"Að fara undir evrópskt pils“ mun ekki auka ábyrgðarkennd Íslendinga

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist eiga mjög erfitt með að sjá að samningur við ESB yrði þannig að hann myndi breyta þeirri grundvallarafstöðu sinni að Íslandi sé betur borgið utan ESB. Hann segir ekki aðeins praktísk rök, þ.e kalt hagsmunamat, ráða viðhorfum sínum, heldur einnig lífsgildi.

Segir Árna Pál "atorkusaman" og vill ekki sjá Icesave aftur

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að yfirstjórn á efnahagsmálum þurfi að vera á einum stað. Hann segir Árna Pál Árnason, "atorkusaman mann" en þeir hafi ekki alltaf verið sammála um alla hluti.

Vill sameina Seðlabankann og FME að nýju

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er þeirrar skoðunar að sameina eigi Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands að nýju. Hann segir að það myndi stytta boðleiðir og auðvelda stjórnvöldum að meta kerfislæga áhættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×