Harmageddon

Morrissey kærir NME

Morrissey.
Morrissey.
Sérvitringurinn og snillingurinn Morrissey hefur kært tímaritið NME vegna viðtals sem lætur hann líta út fyrir að vera rasisti. Málið verður tekið fyrir hjá breskum dómstólum á næsta ári.

Í yfirlýsingu sem Morrissey birtir á aðdáendasíðunni True to You segir að viðtalið hafi skaðað orðspor hans og að blaðamaður NME hafi haft rangt eftir Morrissey og slitið ummæli úr samhengi þannig að hann kom út eins og rasisti.

Þá telur Morrissey að málstaður NME sé óverjandi og leggur fram upptöku og uppkast af öllu sem fór á milli hans og blaðamannsins hjá tímaritinu.



×