Lífið

Fullbókað flugbransapartý

[email protected] skrifar
myndir/eggert jóhannesson
Troðfullt var út úr dyrum í flugbransapartý fram fór á veitingahúsinu Esju í Austurstræti síðasta föstudag. Gestum var boðið upp á Bombay G&T í fordrykk og stuðtónlist af bestu gerð.

Þetta var samansafn af fjörugum snillingum sem aldrei er lognmolla í kringum. Frá því að ég stóð að partýinu árið 2008 hafa margir haft samband við mig og hvatt mig til að endurtaka dæmið sem og við gerðum. Þetta var æðisgengið kvöld, sagði Draupnir Rúnar Draupnisson, einn af skipuleggjendum, spurður út í stemninguna.

Fjöldi fólks sem starfar í háloftunum eða hefur unnið við flugið mætti til að skemmta sér og öðrum eins og greinilega má sjá á meðfylgjandi myndum.

Esja á Facebook






Fleiri fréttir

Sjá meira


×