Viðskipti innlent

"Við misstum tíma og stjórnvöld hafa klárlega spilað stóra rullu"

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að stjórnvöld hafi tapað dýrmætum tíma til að örva fjárfestingar á Íslandi að skapa skilyrði hagvaxtar. Þetta kemur fram í viðtali við Orra í nýjasta þættinum af Klinkinu, spjallþætti um viðskipti og efnahagsmál á viðskiptavef Stöðvar 2 og Vísis.

„Umhverfið hefur ekki verið vinsamlegt. Erlendir fjárfestar fá skömm í hattinn og eru vændir um að hafa eitthvað misjafnt í huga, eins og þegar Alcoa féll frá því að reyna að reisa verksmiðju fyrir norðan, þá fengu þeir skömm í hattinn fyrir að hafa ekki meint neitt með þessu þrátt fyrir að hafa eytt í á annan milljarð króna í undirbúning. Þá má nefna Magma-málið, málefni Kínverjans (Huang Nubo innsk.blm) og fleira," segir Orri.

Orri segir að það sé göfugt markmið að viljia fá sem best verð fyrir orkuna, hins vegar sé eitt að selja orkuna á sem bestu verði og annað að selja hana bara alls ekki. „Aðalatriðið er að það skiptir ekki máli hvort þetta heitir álverksmiðja, eða kísilverksmiðja, eða hvað það er, heldur viljum við bara sjá hluti fara af stað. Við misstum ákveðinn tíma og stjórnvöld hafa klárlega spilað stóra rullu í þessu. Bæði með því að skapa óöryggi meðal fjárfesta um hvers konar reglur gilda hérna, og með reglum um sameiginlegt umhverfismat, bæði fyrir norðan og sunnan, sem hefur tafið mjög ferlið. Núna eru miklu verri fjármögnunarmöguleikar í heiminum heldur en árið 2009 þegar allt átti í að geta hrokkið af stað. Þannig að ég held að stjórnvöld geti alls ekki falið sig gagnvart þessu," segir Orri.

Sjá má bút úr fréttinni þar sem Orri fjallar um fjárfestingar í atvinnulífinu hér fyrir ofan. Sjá má viðtalið við hann í heild sinni hér.[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×