Lífið

Ásdís Rán opnar Icequeen búð

[email protected] skrifar
Búðin opnaði á föstudaginn síðasta í Sófíu City Center Mall en búðin er innréttuð eins og íshellir og Björk fékk að hljóma í hátölurunum í opnuninni, segir Ásdís Rán sem opnaði verslun í Búlgaríu síðasta föstudag en hún dvelur þar í landi ásamt fjölskyldu sinni.

Skoða myndir frá opnun hér og myndband.

Þetta er rosa spennandi verkefni og gaman að þetta sé orðið að veruleika loksins. Búðin er algjör fairytale og allir heillaðir upp úr skónum sem koma þarna inn, segir Ásdís.

Í búðinni er hægt að fá allt Icequeen collectionið. Undirföt, body- vörur, makeup og kjóla. Ég var að klára núna línu af body vörum sem er alveg æðisleg og inniheldur wild berrie og peach. Það er shower-gel, lotion og scrub. Þær eru ekki komnar á markað á Íslandi en söluaðilar geta haft samband við mig núna.

Undirfötin og bodyvörurnar framleiði ég hér í Búlgaríu þannig að það hentar mér vel að vera hérna. Svo er draumurinn bara að gera þetta að stórveldi, segir Ásdís Rán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×