Lífið

Ný fylgihlutalína Gyðju Collection

[email protected] skrifar
Myndir/Kári Sverrisson
Meðfylgjandi má sjá allra fyrstu frumsýningu af auglýsingamyndum sem er hluti af herferð fyrir nýja fylgihlutalínu frá Gyðju Collection sem er hönnuð af Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur.

Sigrún Lilja sem er framkvæmdastjóri Gyðju er einnig andlit nýju línunnar. Myndirnar verða notaðar í markaðssetningu á fylgihlutunum bæði hérlendis og erlendis en salan á vörunum hefst núna um helgina í Debenhams í Smáralind og í Duty Free Fashion í Fríhöfninni.

„Við ákváðum að fara aðeins aftur í tímann og vildum fanga sjarmann sem Hótel Holt hefur geyma. Ég fékk til liðs við mig ljósmyndarann Kára Sverrisson en ég hef fylgst með myndum hans og þótt mikið til þeirra koma. Hann er fagmaður fram í fingurgóma. Stílisti myndatökunnar var Sigrún Rut Hjálmarsdóttir og fötin sem ég klæðist á myndunum eru frá Karen Millen og Zöru" segir Sigrún Lilja ánægð með útkomuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×