Lífið

Dorrit stal senunni

[email protected] skrifar
Hæ! Sæl og gott kvöld, takk fyrir að bjóða mér, sagði Dorrit Moussaieff áður en hún tilkynnti úrslitin í fatahönnunarkeppni Reykjavik Runway sem fram fór í Hafnarhúsinu í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi (sjá myndir hér).

Gestir voru sammála um að Dorrit, sem var klædd í rauðar gallabuxur og leðurjakka, stal senunni þetta kvöld. Forsetafrúin var innileg og faðmaði mann og annan eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Takið eftir þegar sonur Hörpu Einars, sigurvegari keppninnar, faðmar mömmu sína eftir að úrslitin voru kynnt í lok myndskeiðsins. - Hér má sjá viðtal við Hörpu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×