Innlent

Ráðuneytið vissi af skorti á markaðnum

jón 
bjarnason
jón bjarnason

Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri Ferskra kjötvara ehf., hafði samband við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið í sumar sökum fyrirsjáanlegs skorts á kjúklingi á markaðnum vegna salmonellusýkingar hjá framleiðendum.

Leifur fer fram á það í bréfi sínu, dagsettu 30. júlí síðastliðinn, fyrir hönd Aðfanga og verslana Haga, sem eru eigendur Ferskra kjötvara, að leyfi fyrir auknum innflutningi á kjúklingi verði skoðað innan ráðuneytisins. Leifur ítrekaði beiðni sína 5. ágúst.

Að sögn Leifs hafði Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri framleiðslu- og markaðsskrifstofu ráðuneytisins, samband við hann símleiðis í kjölfarið og sagðist hafa athugað stöðuna meðal framleiðenda. Ekki væri að sjá að von væri á skorti á vörunum og því ekki ástæða til að endurskoða innflutningskvóta á erlendum kjúklingi.

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði í samtali við Fréttablaðið í fyrradag að ráðuneytinu hefðu aldrei borist formlegar fyrirspurnir um rýmkun á kvóta né heldur athugasemdir varðandi skort á kjúklingi á markaðnum.

Í blaði gærdagsins sagði Jón Bjarnason að innfluttum kjúklingi fylgdi ekki vottorð um að hann væri salmonellufrír. Í reglugerð landbúnaðarráðuneytisins nr. 509/2004 segir hins vegar að allt hrátt innflutt kjöt skuli geyma í frysti í mánuð og því skuli fylgja „opinbert vottorð sem staðfestir að afurðirnar séu lausar við salmonellusýkla.“

„Það er ekki hægt að horfast í augu við þessa vitleysu, hvað sem ráðherra segir,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.

„Öllu innfluttu kjöti fylgir heilbrigðisvottorð og ekkert kemur inn í landið án þess að hafa verið fryst í 30 daga.“

Andrés segir ráðherra vera grímulaust að ganga á hagsmuni neytenda og hann sinni engu um þeirra þarfir. „Það eina sem honum gengur til er að vernda hagsmuni innlendra framleiðenda. Þeir hafa hvað eftir annað átt við salmonellusýkingar, sem leiða svo til þess að framleiðendur geta ekki sinnt þörfinni á markaðnum,“ segir hann.

Hvorki náðist í Jón Bjarnason né Ólaf Friðriksson við vinnslu fréttarinnar.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×