Innlent

Húsgagnasmíði slær í gegn hjá nýnemum

Guðmundur Hreinsson og Magnús Ólafsson kennari ásamt nemendum
Skólastjóri Byggingartækniskólans og fyrsta árs nemar í húsgagnasmíði á sýningu á skápum og borðum sem nemendur smíðuðu. Sýningin hófst í gær og lýkur í dag í Tækniskólanum á Skólavörðuholti.Fréttablaðið/GVA
Guðmundur Hreinsson og Magnús Ólafsson kennari ásamt nemendum Skólastjóri Byggingartækniskólans og fyrsta árs nemar í húsgagnasmíði á sýningu á skápum og borðum sem nemendur smíðuðu. Sýningin hófst í gær og lýkur í dag í Tækniskólanum á Skólavörðuholti.Fréttablaðið/GVA

Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingartækniskólans, segir ásókn í húsgagnasmíði hafa sprungið út síðustu misseri. Alls sóttu 22 um að byrja í húsgagnasmíði á komandi vorönn. Undanfarið hafa nýnemar hverju sinni verið tíu talsins.

Guðmundur segir aðsóknina að húsgagnasmíðinni sveiflast talsvert eins og tískubylgjur. Stundum hafi hún farið „undir frostmark“ eins og hann orðar það.

„Þegar uppsveiflan í þjóðfélaginu var sem mest var minnsti spenningurinn fyrir þessu námi en upp úr hruni byrjaði einhver undiralda í hina áttina og núna virðist þetta vera alveg í þveröfuga stefnu,“ segir Guðmundur, sem kveður námið í húsgagnasmíði reyndar hafa tekið nokkrum breytingum. Það hafi færst meira í áttina að hönnun og því sæki fleiri listanemendur í deildina.

„Nú leyfum við nemendum að hanna sín eigin húsgögn og smíða eða þá að velja sér húsgögn eftir einhverja fræga hönnuði og smíða þau. Þar af leiðandi höfum við verið að fá nemendur sem hyggja á framhaldsnám í einhverju tengdu listum,“ útskýrir Guðmundur.

Þótt sumir hyggi á framhaldsnám að loknu námi í húsgagnasmíði ætla aðrir að róa á önnur mið.

„Það er kostur að geta bæði hannað og smíðað sína gripi. Margir hafa hug á því að selja sína eigin hönnun og ég hef verið að segja við þessa nemendur að það sé aldrei að vita nema grundvöllur sé fyrir því að fólk hafi litla verslun og verkstæði á bak við – eins og þetta var hérna áður fyrr,“ segir Guðmundur.

Í gær og í dag sýna fyrsta árs nemar smíði sína á skápum og borðum í Tækniskólanum á Skólavörðuholti og er öllum heimill aðgangur að sýningunni. Skólastjórinn segir samsetningu nemendahópsins hafa breyst gríðarlega. Þótt húsgagnasmiðir séu ekki alveg orðnir að kvennastétt sé yfir helmingur nemendanna konur.

„Eftir að þetta varð vinsælt hefur kynjahlutfallið verið næstum jafnt og það er virkilega gaman að því og mjög ánægjulegt að líta inn í kennslustofuna,“ segir Guðmundur Hreinsson.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×