Innlent

Sjálfstæðisflokkur heldur meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum en heldur hreinum meirihluta bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með stuðning 51,2 prósenta þeirra bæjarbúa sem afstöðu tóku í könnuninni. Það er 5,1 prósentustigi undir kjörfylgi flokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2006, þegar flokkurinn fékk 56,3 prósent atkvæða.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn sex bæjarfulltrúa af ellefu, en er með sjö í dag. Vinstri græn ríflega tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosningum, og mælast nú með stuðning 12,1 prósents íbúa í Reykjanesbæ, og einn bæjarfulltrúa. Flokkurinn fékk 5,2 prósent í síðustu kosningum, sem dugði þeim ekki til að ná manni í bæjarstjórn.

Samfylkingin er næststærsti flokkurinn í bænum með rúmlega helming af fylgi Sjálfstæðisflokksins. Samfylkingin nýtur stuðnings 26,4 prósenta samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Yrðu niðurstöður kosninga í takt við þessa niðurstöðu fengi flokkurinn þrjá bæjarfulltrúa.

Framsóknarflokkurinn nýtur stuðnings 10,3 prósenta samkvæmt könnuninni, og fengi samkvæmt því einn bæjarfulltrúa.

Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn buðu fram sameiginlega í kosningunum 2006, undir merkjum A-lista. Flokkarnir fengu þá 33,2 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa. Þeir fá núna samanlagt 36,7 prósent og sama fjölda bæjarfulltrúa.

Samkvæmt könnuninni yrðu því ekki miklar breytingar á fjölda bæjarfulltrúa. Samfylking og Framsóknarflokkur fengju samanlagt sama fjölda og flokkarnir eru með sameiginlega í dag, en Vinstri græn bæta við sig manni á kostnað Sjálfstæðisflokks.

Hringt var í 800 manns mánudaginn 10. maí. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir aldri.

Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tóku 55,9 prósent afstöðu til spurningarinnar.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×