Innlent

Lögreglumenn leiða hvor sinn listann

Guðmundur Ingi Ingason
Guðmundur Ingi Ingason

Oddvitar framboðslistanna tveggja í Skaftárhreppi eru lögregluþjónarnir tveir sem starfa í hreppnum, Guðmundur Ingi Ingason varðstjóri og Þorsteinn Kristinsson lögreglustjóri. „Við erum fagmenn á okkar sviði, það er langt því frá að þessi staða trufli okkur," sagði Þorsteinn þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um málið.

„Þetta er allt í fínu, við ræðum sveitarstjórnarmálin ekkert í vinnunni," sagði Guðmundur Ingi, sem reyndar var nýverið fluttur um set tímabundið og starfar nú á vegum ríkislögreglustjóra í þjónustumiðstöðinni í Vík sem sett hefur verið á laggirnar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

„Hér eru aðallega Mýrdælingar, kjósendur í öðrum hreppi, þannig að ég get ekki misnotað aðstöðuna neitt," segir Guðmundur Ingi og hlær. „En að öllu gamni slepptu þá höfum við unnið nánast allan sólarhringinn síðan gosið hófst og það má segja að kosningarnar hér á þessu svæði séu haldnar í skugga eldgossins."

Þorsteinn segir áhuga íbúa hreppsins þó hafa vaknað verulega eftir að listarnir urðu klárir 8. maí.

Þorsteinn tekur undir með Guðmundi Inga að mikið sé að gera hjá lögreglunni í tengslum við gosið, þó að stærstur hluti Skaftárhrepps hafi sloppið við öskufall.

Helsta ágreiningsefni framboðslistanna snýst um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til vesturs. Listi Þorsteins, Framsýn, er þeirrar skoðunar að það beri að stækka þjóðgarðinn.

„Ég sit í hreppsnefnd og hef unnið að undirbúningi stækkunarinnar, eins og aðalskipulag kveður á um. Í stækkuninni felast mörg tækifæri fyrir hreppinn, til dæmis í ferðaþjónustu," segir Þorsteinn og bendir á að réttindi bænda haldast óbreytt þó að þjóðgarðurinn verði stækkaður.

Listi Guðmundar, „Skaftárhrepp á kortið", vill „stíga varlega til jarðar" í stækkuninni eins og Guðmundur orðar það sjálfur. Hann er nýr í sveitarstjórnarmálum. Þess má geta að fyrir fjórum árum var ekki listakosning í hreppnum heldur persónukjör.

Skaftárhreppur nær frá Mýrdalssandi austur að Skeiðarársandi. Hann er einn stærstu hreppa á landinu, nær yfir sjö prósent af Íslandi. Íbúarnir eru 450.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×