Innlent

Mystery kaupir Áttablaðarós Óttars

Óttar Martin Norðfjörð hefur í hyggju að koma að handritsgerð Áttablaðarósarinnar sem Davíð Óskar Ólafsson og félagar í Mystery Iceland hafa keypt kvikmyndaréttinn að.
Óttar Martin Norðfjörð hefur í hyggju að koma að handritsgerð Áttablaðarósarinnar sem Davíð Óskar Ólafsson og félagar í Mystery Iceland hafa keypt kvikmyndaréttinn að.

Sá tími er runninn upp að framleiðslufyrirtæki í kvikmyndagerð bítist um kvikmyndarétt að jólabókunum. Nýjasta salan er Áttablaðarósin eftir Óttar Martin Norðfjörð.

„Við höfum fylgst með Óttari [Norðfjörð] frá því að Hnífur Abrahams kom út, við höfum rætt mikið saman enda hefur hann sjálfur verið að fikta við að skrifa handrit. Okkur fannst rétta tækifærið núna og gripum það," segir Davíð Óskar Ólafsson hjá framleiðslufyrirtækinu Mystery Iceland.

Fyrirtækið hefur keypt kvikmyndaréttinn að Áttablaðarósinni eftir Óttar Martin Norðfjörð sem kom út fyrir þessi jól. Þetta er ekki fyrsta bókin eftir Óttar sem kvikmyndafyrirtæki festir kaup á því árið 2007 tryggði ZikZak sér réttinn að áðurnefndri bók, Hníf Abrahams. Þá átti að fara með tökulið til New York og gera íslenska kvikmynd af áður óþekktri stærð. Mystery Iceland menn eru hins vegar á ögn hófsamari nótum enda ekki 2007 lengur.

„Þetta mun taka sinn tíma, sérstaklega að skrifa handrit upp úr bókinni sem við erum allir sáttir við. Síðan fer af stað ferli þar sem sækja þarf um alls konar styrki."

Óttar Martin sjálfur var í skýjunum með tíðindin þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Og viðurkenndi að andrúmsloftið væri aðeins öðruvísi en þegar æðið í kringum Hníf Abrahams gekk yfir.

„Menn höfðu háleitar hugsjónir þá og ótakmarkað aðgengi að fjármagni. Áttablaðarósin er líka aðeins lágstemmdari og krefst þess ekki að hún verði tekin upp í New York," segir Óttar og telur líklegt að hann verði með puttana í handritsgerðinni.

„Annað hvort skrifa ég þetta sjálfur eða hjálpa til. Mig langar allavega að vera með."

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×