Lífið

Hver er framtíð myndlistarinnar?

myndlist Tveir áratugir eru liðnir síðan Listasafn Reykjavíkur opnaði höfuðstöðvar sínar í Hafnarhúsinu við Miðbakkann. mynd fréttablaðið/
myndlist Tveir áratugir eru liðnir síðan Listasafn Reykjavíkur opnaði höfuðstöðvar sínar í Hafnarhúsinu við Miðbakkann. mynd fréttablaðið/

Hinn 19. apríl 2010 er áratugur liðinn frá því að Listasafn Reykjavíkur var opnað í Hafnarhúsinu. Af því tilefni er efnt til myndlistarþings með þátttöku á annað hundrað aðila komandi laugardag.

Hluti þátttakenda er valinn fyrirfram en Listasafnið leggur ríka áherslu á að ná fram ólíkum sjónarmiðum og óskar því góðfúslega eftir þátttöku utanaðkomandi sem láta sig málefnið varða.

Á meðan málþingið fer fram stendur fjölskyldufólki til boða að taka þátt í listasmiðju þar sem unnið verður með viðfangsefni í anda Errós. Boðið verður upp á léttar veitingar í smiðjunni, eða frá kl. 13-16.

Á málþingið boðar Listasafn Reykjavíkur safnafólk, listfræðinga, stjórnmála- og embættismenn, sem vinna saman í hópum. Þátttakendum er ætlað að ræða málefni er varða stöðu myndlistar á Íslandi, m.a. söfn, sýningarrými, stofnanalegt umhverfi og aðstöðu og hagsmunamál myndlistarmanna.

Þingmönnum er ætlað að fara yfir þróunina síðasta áratuginn, ræða núverandi stöðu og velta fyrir sér framtíðarhorfum. Áður en þingið sjálft hefst mun Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, ávarpa þátttakendur og Jón Proppé listheimspekingur flytja inngangsorð. Í lok þingsins verður dregin saman niðurstaða allra vinnuhópanna.

Áhugasamir geta sent inn nafn, símanúmer og núverandi starfsvettvang í netfangið [email protected] eða hringt í síma 590-1200.

Þingið fer fram í A-sal Hafnarhússins en meðan á því stendur verður starfrækt Erró-smiðja í fjölnotasalnum undir stjórn Bergsveins Þórssonar. Hinir eftirsóttu risakubbar Errós verða á gólfinu en úr þeim má raða saman listaverkum eftir Erró eða leika sér eins og hugmyndaflugið leyfir. Boðið verður upp á léttar afmælisveitingar á meðan á smiðjunni er opin.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×