Innlent

Alexander og Anna vinsæl

Nafnið Alexander var vinsælasta nafngift íslenskra sveinbarna á síðasta ári en Anna var vinsælasta nafnið sem foreldrar völdu nýfæddum stúlkubörnum. Anna var einnig algengasta nafnið árið áður, en Alexander tók við af Viktori sem algengasta drengjanafnið.

Samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands fengu flestir sem fæddir voru á árinu 2009 fleiri en eitt nafn. Þór var langvinsælasta annað nafn drengja en Freyr og Ingi voru í öðru og þriðja sætinu. María og Ósk voru algengustu önnur nöfn nýfæddra stúlkna. Í þriðja sætinu var nafnið Líf, sem tók við af nafninu Rós sem þriðja vinsælasta val foreldra stúlkubarna.

Þegar skoðuð er dreifing nafna á Íslendingum á öllum aldri hefur lítil breyting verið á algengustu nöfnunum. Jón er enn algengasta karlmannsnafnið. Sigurður og Guðmundur fylgja þar fast á eftir í vinsældum. Hjá konum er nafnið Guðrún enn algengasta eiginnafnið, þá Anna og svo Sigríður.

Meirihluti Íslendinga ber fleiri en eitt nafn. Vinsælustu samsetningarnar hjá körlum eru Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Algengustu samsetningarnar hjá konum eru Anna María, Anna Margrét og Anna Kristín.

Í samantekt Hagstofunnar er einnig yfirlit yfir afmælisdaga landsmanna. Þeir dreifast ekki jafnt yfir árið, enda algengast að börn fæðist að sumri og á haustin. Fæstir eiga afmæli á vetrarmánuðum frá nóvember fram í febrúar.

Algengasti afmælisdagurinn í byrjun árs 2010 var 16. júlí. Þá áttu 974 einstaklingar afmæli. Fæstir eiga afmæli 24. desember, 666 manns samtals. Næstfæstir eiga afmæli á gamlársdag, 705 talsins.

Sá dagur sem fæstir eiga sem afmælisdag er þó auðvitað 29. febrúar, en miðað við mannfjöldatölur frá upphafi árs 2010 má reikna með að 208 einstaklingar bíði spenntir eftir næsta afmæli, sem verður árið 2012.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×