Innlent

Hægri hönd í eftirsótt starf

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson

Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, hafnar því alfarið að ráðning Jóhanns Guðmundssonar í embætti skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins sé af pólítískum toga.

Jóhann hefur gegnt starfi aðstoðarmanns Jóns Bjarnasonar undanfarna mánuði en áður aðstoðaði hann Steigrím J. Sigfússon fjármálaráðherra á meðan hann gegndi embætti landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra á undan Jóni.

„Það er ómaklegt að setja málið fram með þeim hætti að annarleg sjónarmið hafi ráðið hér för. Svo er ekki. Ég óskaði eftir því að starfsmenn ráðuneytisins færu yfir umsækjendur á faglegum nótum og Jóhann varð þar hlutskarpastur. Í ljósi þess skipaði ég hann í embættið. Þetta er gert á fullkomlega faglegum nótum enda afar hæfur maður ráðinn að öðrum umsækjendum ólöstuðum,“ segir Ögmundur.

Ögmundur réð Jóhann í stöðuna vegna vanhæfis Jóns til að taka ákvörðun um skipun í embættið. Upphaflega hafði forsætisráðherra skipað Rögnu Árnadóttur, forvera Ögmundar, til að taka ákvörðun um skipun í embættið.

Aðspurður segir Ögmundur það eðlilegt að fjölmiðlar spyrji spurninga um ráðningarferlið í ljósi þess að Jóhann hefur starfað sem aðstoðarmaður tveggja ráðherra Vinstri grænna í eitt og hálft ár. Hann vill ekki svara því hverjir lögðu mat á hæfi umsækjendanna. „Ráðningin er á mína ábyrgð. Ég einn svara fyrir það.“

Í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var skipaður starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins til að meta þau atriði sem beindust sérstaklega að stjórnsýslunni í landinu og starfsháttum Stjórnarráðsins. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fór fyrir nefndinni. Þótti þetta nauðsynlegt til að hnykkja á atriðum sem gætu orðið til þess að bæta stjórnsýsluna.

Afstaða starfshópsins var að rétt væri að endurskoðun færi fram á fyrirkomulagi við skipanir æðstu embættismanna ríkisins.

„Ein leið að því marki, og væntanlega mjög áhrifarík, er að takmarka afskipti ráðherra af ráðningum. Þetta er meðal annars unnt með því að setja á laggirnar svokallaðar ráðninganefndir.“

Jóhann mun gegna starfi skrifstofustjóra í tvö ár hið minnsta, í fjarvistum Steinars Inga Matthíassonar.

[email protected]

Jón Bjarnason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×