Innlent

Færðu lán á milli banka með afslætti

Bankarnir verða að bæta sig Almar Guðmundsson, hér Þorsteini Pálssyni á hægri hönd, segir bankana geta nýtt svigrúm við endurmat á lánasöfnun til að lækka skuldir einstaklinga og fyrirtækja. Fréttablaðið/Valli
Bankarnir verða að bæta sig Almar Guðmundsson, hér Þorsteini Pálssyni á hægri hönd, segir bankana geta nýtt svigrúm við endurmat á lánasöfnun til að lækka skuldir einstaklinga og fyrirtækja. Fréttablaðið/Valli

Lánasöfn gamla Kaupþings voru færð yfir til Arion banka með sextíu prósenta afslætti. Bæði Arion banki og Íslandsbanki hafa á síðustu átján mánuðum uppfært virði lánasafna, enda reikna þeir með betri heimtum en gert var ráð fyrir í kringum bankahrunið.

„Þetta sýnir að bankarnir hafa verulegt svigrúm til að leiðrétta efnahagsreikninga lítilla og meðal­stórra fyrirtækja,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Hann var með erindi á fundi félagsins gær í tilefni af því að tvö ár voru liðin frá því að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað Guð að blessa Ísland. Almar gerði að umtalsefni að einungis 51 fyrirtæki hefði farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu hjá bönkunum.

Á fundinum sýndi Almar endur­skoðaða ársreikninga Arion banka og Íslandsbanka. Þar sást skýrt mat á virði lánasafna. Samkvæmt uppgjöri Arion banka var nafnvirði útlánsafns gamla bankans metið á 1.237 milljarða króna. Afslátturinn við yfirfærslu nam 738 milljörðum króna. Bókfært virði lánasafnsins var rétt rúmir 466 milljarðar í síðasta uppgjöri.

„Þegar bankinn mat greiðslugetu viðskiptavina kom í ljós að þeir gátu greitt meira en reiknað hafði verið með. Bankinn þarf því að færa lánin upp,“ segir Almar og bendir á að við endurmatið myndist svigrúm, sem fram til þessa virðist aðeins hafa færst sem hagnaður í bókum bankanna.

„Það mætti klárlega nýta betur en þegar hefur verið gert,“ segir Almar og vísar til þess að bankarnir hafi getað það í tengslum við gengistryggð bílalán einstaklinga. [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×