Lífið

Tvö ólík kórverk flutt

tónlist Þóra Einarsdóttir er í stóru hlutverki á tónleikum Vox academica annað kvöld.
Mynd Fréttablaðið
tónlist Þóra Einarsdóttir er í stóru hlutverki á tónleikum Vox academica annað kvöld. Mynd Fréttablaðið

Vortónleikar Vox academica verða haldnir að þessu sinni í Langholtskirkju annað kvöld kl. 20. Á dagskránni eru tvö stórvirki kórbókmenntanna: Sálumessan eftir W.A. Mozart og Jauchzet Gott in allen Landen eftir J. S. Bach. Með kórnum verður stórskotalið einsöngvara: Þóra Einarsdóttir sópran, Ingunn Ósk Sturludóttir alt, Gissur Páll Gissurarson tenór og Kristinn Sigmundsson bassi. Undirleikur er í höndum Jón Leifs camerata og stjórnandinn er að vanda Hákon Leifsson.

Requiem, eða Sálumessan, er eitt magnaðasta kórverk tónbókmenntanna og vekur síst minni hrifningu nú en fyrir ríflega tveimur og hálfri öld, þegar það var sett á blað. Verkið samdi Mozart samkvæmt pöntun og fékk greiðslur fyrir. Honum entist hins vegar ekki aldur til að ljúka því. Nokkrir nemendur hans og kunningjar hafa verið nefndir til sögunnar í tengslum við frágang Requiem, en sá sem stærstan hlut átti þar að máli var Süßmayr. Fyrstu brot úr verkinu voru flutt við minningarathöfn um Mozart 10. desember 1791.

Jauchzet Gott in allen Landen BWV 51 er kantata í fimm hlutum eftir J. S. Bach. Snilli Bachs ætti að vera flestum kunn og er þetta verk gjarnan valið til flutnings við brúðkaup. Hér verður það túlkað af Þóru Einarsdóttur, ásamt undirleikurum úr Jón Leifs Camerata.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×