Lífið

Ekki að herma eftir neinum

Syngur Elvis og Villa Vill Friðrik Ómar í Elvis-gírnum fyrr á árinu. Nú er að koma út plata og mynddiskur með efni frá tónleikunum.
fréttablaðið/anton
Syngur Elvis og Villa Vill Friðrik Ómar í Elvis-gírnum fyrr á árinu. Nú er að koma út plata og mynddiskur með efni frá tónleikunum. fréttablaðið/anton

Friðrik Ómar heldur þrenna tónleika á Akureyri þar sem hann syngur lög Vilhjálms Vilhjálmssonar. Plata og mynddiskur með Elvis-tónleikum hans í Salnum eru einnig að koma út.

Söngvarinn Friðrik Ómar hefur í nógu að snúast um þessar mundir. Uppselt er á þrenna tónleika sem hann heldur um helgina í menningarhúsinu Hofi á Akureyri með lögum Vilhjálms Vilhjálmssonar. Auk þess kemur plata og mynddiskur með Elvis Presley-tónleikum hans í verslanir á föstudag.

„Fyrir mér snúast þessi tvö verkefni um að halda stóra tónleika. Það er svo rosalega erfitt að vera með eitthvað á boðstólum sem fólk þekkir ekki og þetta eru tveir af mínum uppáhaldssöngvurum,“ segir Friðrik Ómar.

Hann hefur haldið sextán Elvis-tónleika á undanförnum árum og alls hafa sex til sjö þúsund manns komið að horfa á. „Ég byrjaði á þeim 2005. Síðan er ég búinn að halda þá með reglulegu millibili en mestu törnina tók ég í Salnum,“ segir hann og á þar við hina vel heppnuðu tónleikaröð í byrjun ársins.

Spurður hvort fólk vilji ekki frekar kaupa plötur og mynddiska með Elvis-sjálfum heldur en að kaupa hans útgáfu, viðurkennir Friðrik að ekkert komi í staðinn fyrir kónginn sjálfan.

„En það er skemmtilegt að upplifa lögin flutt lifandi með flottum hljóðfæraleikurum. Ég er í hvorugu tilfellinu að herma eftir eða neitt þannig og er ekki í neinum búningum,“ segir hann og á þar líka við Villa Villa-verkefnið. „Ég er líka að segja fólki frá ýmsu sem gerðist á þeirra ferli, þannig að þetta er smá sögustund í leiðinni. Ég held líka að eftir svona tónleika fari margir og kaupi plöturnar þeirra.“

Friðrik hefur búið í Svíþjóð að undanförnu og líkar lífið þar mjög vel. „Það er búið að vera mjög fínt. Ég er kominn á fullt að taka upp lög eftir aðra og eftir mig,“ segir hann.

„Ég er að kynnast bransanum og það tekur sinn tíma og ég er með báða fæturna á jörðinni. Þessi bransi er mjög fagmannlegur en það er mikil samkeppni líka. Fjórtán til fimmtán prósent af þjóðarframleiðslunni í Svíþjóð er tónlist, þannig að þetta er rosa stórt batterí þarna og mikilvægt, rétt eins og landbúnaðurinn hér heima,“ segir hann og hlær.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×