Innlent

Skoða lækkun tolla á innfluttum kjúklingi

bjarni harðarson
bjarni harðarson

„Það er verið að skoða þessi mál mjög alvarlega," segir Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um kröfur um tollfrjálsan innflutning á kjúklingi.

Ráðuneytinu barst formlegt erindi í gær frá Samtökum verslunar og þjónustu þar sem þess er krafist af Jóni Bjarnasyni landbúnaðarráðherra að hann heimili aukinn innflutning nú þegar og mikilvægt sé að hann sé án aðflutningsgjalda. Ástæðan er síendurtekin tilfelli salmonellusýkinga hjá innlendum framleiðendum sem leiða til skorts á kjúklingi á markaðnum.

Bjarni segir að mikilvægt sé að hafa í huga að bæði framleiðendur og innflytjendur séu hagsmunahópar í málinu og verið sé að afla gagna í ljósi þess. „Nú er verið að skoða birgðastöðu á markaðnum fyrst og fremst," segir Bjarni. „Fyrstu athuganir okkar benda til þess að það séu nægar birgðir og það er byggt á upplýsingum víða að."

Bjarni segir enn fremur að nefnd sem fjallar um innflutningsmál þurfi að skoða og fjalla um málið áður en ráðuneytið getur tekið ákvörðun.

Í nóvember greindust tveir eldishópar jákvæðir af salmónellu til viðbótar við þá 27 sem greinst hafa á þessu ári. Þessum hópum þarf að farga og urða fuglana. Einnig hafa greinst þrír sláturhópar til viðbótar við þá 18 sem greinst höfðu á árinu. Í Bændablaðinu í gær kom fram að á tveimur og hálfu ári hefði meira en hálfri milljón kjúklinga verið fargað.

Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir að grunur leiki á að sýkingarnar berist til framleiðenda með fóðrinu. Verið sé að nota innflutt sojamjöl í auknum mæli sem prótíngjafa í fóðurframleiðslu og margt bendi til þess að sýkingin dreifist með því. Ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×