Innlent

Norðmenn takast á um ESB-aðild Íslands

Hvaða áhrif hefði innganga Íslands? Lesa má um áhuga Norðmanna á aðildarumsókn Íslendinga á www.neitileu.no og á www.jasiden.no.fréttablaðið/klemens
Hvaða áhrif hefði innganga Íslands? Lesa má um áhuga Norðmanna á aðildarumsókn Íslendinga á www.neitileu.no og á www.jasiden.no.fréttablaðið/klemens

Norsk samtök, sem berjast með og á móti inngöngu Noregs í Evrópusambandið, styðja systursamtök sín á Íslandi á ýmsan hátt og stendur meðal annars yfir fjársöfnun fyrir Heimssýn, íslensku nei-samtökin.

Á heimasíðu hins norska „Nei við ESB“ er fjallað um hugsanlega inngöngu Íslands. Þar segir að norsku samtökin miðli af þekkingu sinni og reynslu til Íslendinganna. Ferðalög og þýðingar kosti sitt:

„Styðjið íslensku nei-hliðina með framlagi inn á samstöðureikning Nei við ESB,“ segir þar og númer bankareiknings fylgir.

Á heimasíðu norsku Evrópuhreyfingarinnar er einnig fjallað um aðildarviðræður Íslands. Hreyfingin muni fylgjast vel með ferlinu og styðja við íslensku já-hliðina, ásamt Fjölþjóðlegu Evrópuhreyfingunni.

Ekki er að heyra á Páli Vilhjálmssyni, starfsmanni Heimssýnar, að söfnunin hafi skilað miklu. Félagið hafi fengið „sama og ekkert“ í aurum talið frá norsku samtökunum.

Þó fór hópur frá Heimssýn á landsfund hjá norska nei-inu í fyrra og greiddu Norðmenn ferð og uppihald. Eins komu Norðmennirnir hingað með litla sendinefnd og greiddu sjálfir fyrir.

„Þar kynntumst við því hvernig þeir skipulögðu baráttuna gegn ESB-samningnum 1994 og það var heilmikið á því að græða,“ segir Páll. Minna samstarf hafi verið við sænska og danska nei-ið, en frá dönsku samtökunum hafi þó Evrópuþingmaður, neikvæður í garð ESB, heimsótt Heimssýn á kostnað Evrópuþingsins.

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, framkvæmdastjóri Sterkara Íslands, segir samtökin enga peninga hafa fengið frá Norðmönnum.

„Nei. Við vorum í samstarfi við norsku samtökin um fyrirlestur Joe Borg. Þau borguðu hluta kostnaðarins á móti okkur,“ segir hún en veit ekki nákvæmlega hvernig því var skipt.

„Um leið funduðum við með stjórn norsku samtakanna um helgina, sem var mjög gagnlegt,“ segir hún. Einnig sé félagið í samstarfi við Fjölþjóðlegu Evrópuhreyfinguna í gegnum íslensku Evrópusamtökin.

Engin söfnun standi yfir hjá norsku já-hliðinni eins og hjá nei-hliðinni gagnvart Heimssýn.

[email protected]

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×