Innlent

Var illa við að skilja dýrin eftir á bænum

Vilborg segir verst að hafa þurft að skilja skepnurnar eftir en hún sleppti tveimur merum lausum áður en hún fór.  Fréttablaðið/daníel
Vilborg segir verst að hafa þurft að skilja skepnurnar eftir en hún sleppti tveimur merum lausum áður en hún fór. Fréttablaðið/daníel

„Auðvitað bregður manni fyrst en við urðum strax rórri þegar okkur var tjáð að þetta væri lítið gos,“ segir Vilborg Alda Jónsdóttir, bóndi í Hvítanesi í Vestur-Landeyjum, þegar henni var tilkynnt að byrjað væri að gjósa.

Vilborg fékk símtal fljótlega eftir miðnætti á laugardagskvöld og var sagt að hún þyrfti að yfirgefa heimilið ásamt foreldrum sínum. Þau fengu gistingu hjá systur Vilborgar á Hvolsvelli.

„Það kom sér vel að hún er í fríi á Kanarí. Við vorum fljót að taka okkur til en mamma tók að vísu ansi mikinn farangur með sér,“ segir Vilborg. Kindur, kýr og hestar eru á bænum og segir Vilborg að verst hafi verið að skilja skepnurnar eftir. „Mér var hugsað til dýranna áður en ég fór. Hrossin ganga flest laus, fyrir utan tvær merar sem voru inni í hesthúsi og ég sleppti lausum. Ég man að ég hugsaði með mér: Þetta er Eyjafjallajökull. Annaðhvort verður allt í lagi eða þetta fer illa. Sem betur fer fór allt vel í þetta sinn og dýrin voru öll róleg.“

Vilborg fékk að fara heim í gær til að huga að skepnunum og var að gefa hestunum þegar Fréttablaðið bar að garði. Hún hafði þá ekki fengið að vita hvort hún mætti sofa heima hjá sér í nótt. Hún kvaðst mundu fara heim ef það yrði heimilað en foreldrar hennar myndu gista heima hjá systur hennar að minnsta kosti eina nótt í viðbót.

Þrátt fyrir afleitt skyggni sást bjarminn frá gosinu vel frá Hvítanesi aðfaranótt sunnudags. Vilborg segir þó ekki íþyngjandi tilhugsun að búa í grennd við virka eldstöð. „Þetta venst; ef það væri ekki þetta þá eitthvað annað. En nú hlýtur Katla að fara að rumska; það held ég að hljóti að vera.“

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×