Innlent

Sjálfstæðisflokkur fylgir væntingum

Væntingavísitalan, sem Capacent Gallup mælir reglulega, virðist samkvæmt samanburði sem sjá má á vef Datamarket haldast þétt í hendur við fylgi Sjálfstæðisflokksins, að minnsta kosti síðustu árin. Stjórnmálafræðingur segir erfitt að svara því hvort um tilviljun sé að ræða eða raunverulega fylgni.

Væntingavísitalan lækkaði í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Tvíburaturnana í New York 11. september 2001. Á sama tíma jókst fylgi Sjálfstæðisflokks. Það lækkaði hins vegar um það leyti sem íslensk stjórnvöld ákváðu að styðja innrásina í Írak.

Fylgi flokksins og vísitala væntinga hafa fylgst þétt að frá því í byrjun árs 2008. Báðar kúrfur náðu botninum á sama tíma. Undanfarin misseri hafa væntingar almennings til efnahagslífsins batnað og um leið eykst fylgi Sjálfstæðismanna.

Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur segist ekki vita hvort fylgnin hafi í raun og veru einhverja sögu að segja, en sú staðreynd að væntingavísitalan byrji að tengjast fylgi Sjálfstæðisflokksins um og upp úr áramótum 2007 og 2008 segi að Íslendingar tengi væntingar sínar að einhverju leyti við flokkinn að minnsta kosti ári fyrir hrun.

„Vísitalan byrjar að fylgja gengi Sjálfstæðisflokksins á meðan hann situr í ríkisstjórn í aðdraganda hrunsins," segir Grétar. „Þetta hefur ekkert endilega neitt með það að gera að hann sé í andstöðunni eins og í dag."

Grétar telur mögulegt að kjósendum landsins sé tamt að tengja Sjálfstæðisflokkinn við von um betri tíð með blóm í haga og það sé ein skýringin. Hins vegar þurfi að spyrja þeirra spurninga hvers vegna væntingavísitalan hafi ekki haldist í hendur við fylgið fyrir lok 2007 og hvers vegna tengingin sé svona gríðarlega sterk eftir hrun.

„Kannski er þetta flokkur vonarinnar, það er spurning."

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðiflokksins, sagðist ekki hafa neina skoðun á fylgni væntingavísitölunnar við fylgi flokksins og kvað málið ópólitískt.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×