Innlent

Flestir vilja ljúka viðræðum og kjósa

Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja frekar að aðlidarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið og málið lagt í dóm þjóðarinnar.

Alls vildu 64,2 prósent þeirra sem afstöðu tóku ljúka aðildarviðræðunum og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn frekar en að draga umsókn um aðild til baka. Um 35,8 prósent voru þeirrar skoðunar að frekar ætti að draga umsóknina til baka.

Afgerandi meirihluti stuðningsmanna Samfylkingarinnar vill ljúka aðildarviðræðunum, alls 83,8 prósent. Alls sögðu 16,2 prósent þeirra sem sögðust myndu kjósa Samfylkinguna ef gengið yrði til kosninga nú að þeir vildu frekar draga umsóknina til baka.

Hjá stuðningsmönnum Vinstri grænna er einnig meirihluti fyrir þeirri leið, og vildu 63,6 prósent ljúka viðræðunum, en 36,4 prósent draga umsóknina til baka.

Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru klofnir í tvo svipað stóra hópa í afstöðu sinni til spurningarinnar. Alls vildu 53,6 prósent draga umsóknina til baka, en 46,4 prósent vildu ljúka aðildarviðræðunum og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn.

Hlutföllin eru svipuð meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins, þótt munurinn á hópunum sé ívið minni. Alls vilja 52,2 prósent þeirra sem sögðust myndu kjósa flokkinn draga umsóknina til baka, en 47,8 prósent vilja frekar ljúka viðræðunum.

Ekki reyndist tölfræðilega marktækt að reikna afstöðu fylgismanna annarra framboða til spurningarinnar.

Lítill munur var á afstöðu kynjanna til aðildarviðræðna. Alls vilja 65,1 prósent karla sem afstöðu tóku ljúka viðræðunum, en 63,2 prósent kvenna.

Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 23. september. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvort myndir þú heldur kjósa:

1) Að draga til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu, eða 2) Að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn?

Alls tóku 88,9 prósent afstöðu til þeirrar spurningar.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×