Lífið

Snýr sér að KR-útvarpinu eftir 42 ára starf hjá RÚV

bjarni felixson Bjarni ásamt Álfheiði Gísladóttur, konu sinni, á 110 ára afmæli KR. Hann er hættur að lýsa íslenska boltanum á Rás 2 og ætlar þess í stað að lýsa fyrir KR-útvarpið.  fréttablaðið/vilhelm
bjarni felixson Bjarni ásamt Álfheiði Gísladóttur, konu sinni, á 110 ára afmæli KR. Hann er hættur að lýsa íslenska boltanum á Rás 2 og ætlar þess í stað að lýsa fyrir KR-útvarpið. fréttablaðið/vilhelm

„Þetta er afturför,“ segir Bjarni Felixson, sem er hættur að lýsa leikjum úr íslenska fótboltanum á Rás 2. „Íþróttir og íþróttalýsingar virðast vera algjörlega á undanhaldi í útvarpinu og meira að segja í fréttum líka, því miður,“ segir Bjarni.

42 ár eru liðin síðan Bjarni byrjaði að lýsa enska boltanum í Sjónvarpinu og síðan þá hefur hann lýst hinum ýmsum íþróttaviðburðum, þar á meðal íslenska boltanum á sumrin. En núna er rödd Bjarna þögnuð á RÚV og hljóta það að teljast viss vatnaskil í íslenskri íþrótta- og fjölmiðlasögu. Hann viðurkennir að þetta séu viðbrigði fyrir sig eftir öll þessi ár og hefði sjálfur viljað halda áfram að lýsa leikjum fyrir Íslendinga vítt og breitt um landið.

Bjarni er þó ekki alveg af baki dottinn því KR-útvarpið hefur falast eftir kröftum hans.

„Þeir töluðu við mig í vor og ég lofaði að þegar ég myndi hætta myndi ég sennilega hjálpa þeim eitthvað. Ég verð að efna það,“ segir hann. Svo gæti einnig farið að Bjarni lýsti einum leik fyrir Selfoss-útvarpið en sonur hans Gísli Felix býr á Selfossi.

„Sonur minn nefndi það við mig en ég veit ekki hversu mikil alvara er í því. Það getur vel verið að ég taki Selfoss-KR í Selfoss-útvarpinu ef Guð lofar. Bæði Selfyssingar og KR-ingar hafa allavega manndóm í að halda úti svona lýsingum.“

En hvernig líst „Rauða ljóninu“ á sína menn í KR í sumar? „Illa. Mér leist vel á þá í deildarbikarnum. Ég sá þá vinna FH en skildi svo ekkert í því að þeir skyldu ekki vinna Hauka. Ég skil það ekki enn. En við sjáum til, þetta er rétt að byrja.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×