Innlent

Vilja alla flokka í meirihlutasamstarf

guðrún ágústa guðmundsdóttir
guðrún ágústa guðmundsdóttir

Fulltrúar þeirra þriggja flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hittust á óformlegum fundum í gær. Heimildir Fréttablaðsins herma að Vinstri græn hafi stungið upp á að komið yrði á fót stjórn allra flokkanna.

Samfylkingin tapaði stórt í sveitarfélaginu og missti tvo fulltrúa. Þar á meðal bæjarstjórann, Lúðvík Geirsson, sem skipaði sjötta sæti listans. Vinstri græn héldu sínum fulltrúa en Sjálfstæðisflokkurinn bætti verulega við sig og vann tvo menn. Stóru flokkarnir eiga því hvor sína fimm fulltrúana sem setur Vinstri græn í oddastöðu með sinn eina mann.

Fulltrúar þeirra hittu hina flokkana á óformlegum fundum í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins vill flokkurinn láta reyna á samstjórn allra flokkanna. Skilaboðin frá kjósendum hafi verið ákall um breytingar.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti flokksins, segist mjög hugsi yfir því hve fáir mættu á kjörstað og hve margir skiluðu auðu. „Hér voru ekki nema 65% sem mættu á kjörstað og 15% af þeim sem mættu skiluðu auðu. Ef einhvern tímann eru gefin skilaboð um að hugsa hlutina upp á nýtt þá er það núna.“

Lúðvík segir niðurstöðu kosninganna mikil vonbrigði fyrir flokkinn. Hann vann stórsigur í síðustu kosningum og sjö menn og stefndi að því að halda sex núna. „Við erum að skoða þá möguleika sem eru í stöðunni fyrir myndun meirihluta. Jafnaðar- og félagshyggjuflokkarnir eru saman með meirihluta og mér finnst það skýr skilaboð frá kjósendum.“ Lúðvík segir vinstri flokkana hafa talað fyrir samstarfi fyrir kosningar og það ætti enn að standa. Hann vildi ekki segja hvort flokkurinn gerði kröfu um að hann yrði bæjar-stjóri. Heimildir blaðsins herma að Vinstri græn geri ráð fyrir að Guðrún verði bæjarstjóri, verði af samstjórn.

Valdimar Svavarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segist í skýjunum eftir stórsigur flokksins. Hann segir menn opna fyrir ýmsum samstarfsmöguleikum, en ekkert sé fast í hendi ennþá. „Fólk er að ræða saman og við erum opin fyrir því að skoða ýmislegt. Það er hins vegar ekkert áþreifanlegt komið ennþá og allir möguleikar opnir.“ Taka verði tillit til þeirra skilaboða sem kjósendur gáfu í kosningunum og með lítilli þátttö[email protected]

lúðvík geirsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×