Innlent

Vill að sérsveitin fái að beita rafbyssum

Lögreglumaður Fái íslenska sérsveitin að bera rafbyssur við skyldustörf mun hún feta í fótspor hollenskra sérsveitarmanna, en tilraun þeirra með notkun vopnanna hefur staðið frá því á síðasta ári, þegar þessi mynd var tekin.Nordicphotos/AFP
Lögreglumaður Fái íslenska sérsveitin að bera rafbyssur við skyldustörf mun hún feta í fótspor hollenskra sérsveitarmanna, en tilraun þeirra með notkun vopnanna hefur staðið frá því á síðasta ári, þegar þessi mynd var tekin.Nordicphotos/AFP

Engin ástæða er til þess að lögreglumenn hér á landi verði vopnaðir rafbyssum, að mati ríkislögreglustjóra. Hann vill þó heimila sérsveitarmönnum að beita slíkum vopnum í tilraunaskyni, að því er fram kemur í skýrslu embættisins um ofbeldi gegn lögreglumönnum.

Alls voru 108 ofbeldisbrot framin gegn lögreglumönnum á síðasta ári. Fram kemur í skýrslunni að heldur hafi dregið úr fjölda brota af þessu tagi. Árið 2008 voru brotin 118 talsins, og 120 árið 2007.

Í skýrslu ríkislögreglustjóra er bent á að á Norðurlöndunum hafi aðeins lögreglan í Finnlandi tekið upp notkun á rafbyssum. Í Bandaríkjunum og Kanada, þar sem rafbyssur hafa verið hvað mest notaðar, hafa tæplega 300 látist af þeirra völdum.

„Sé tekið mið af þessum þáttum og því að brotum hefur ekki fjölgað umtalsvert á Íslandi, fækkað ef eitthvað er, þá er það mat ríkislögreglustjóra að slík tæki eigi ekki að taka í almenna notkun á Íslandi. Hins vegar sé vert að kanna hvort sérsveitin eigi að prófa frekar þessi tæki og hafa sem hluta af sínum staðalbúnaði tímabundið,“ segir í skýrslunni.

Verði almennum lögreglumönnum heimilað að bera rafbyssur og beita þeim gæti það leitt til þess að byssurnar yrðu notaðar sem tæki til að kalla fram hlýðni fólks, líkt og reynsla Bandaríkjamanna hefur leitt í ljós, segir í skýrslunni.

„Slíkt myndi leiða til lakara trausts til lögreglunnar og gera henni þar með erfiðara fyrir við að leysa þau verkefni sem henni er ætlað í samfélaginu,“ segir þar.

Ríkislögreglustjóri telur ekki þörf á að breyta reglum um búnað lögreglumanna til að þeir geti borið rafbyssur og beitt þeim.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×