Lífið

Sjónvarpslaust og kósí á hverju fimmtudagskvöldi

forsprakkar <B>Sigurður Ásgeir Árnason og trúbadorinn </B>Svavar Knútur eru mennirnir á bak við Sjónvarpslaus fimmtudagskvöld. fréttablaðið/arnþór
forsprakkar <B>Sigurður Ásgeir Árnason og trúbadorinn </B>Svavar Knútur eru mennirnir á bak við Sjónvarpslaus fimmtudagskvöld. fréttablaðið/arnþór

Viðburðurinn Sjónvarpslaus fimmtudagskvöld verður haldinn í fyrsta sinn í Slippsalnum á fimmtudaginn. Fólk er hvatt til að hvíla sig á sjónvarpinu og njóta íslenskrar menningar í kósí stemningu.

„Þetta verður svona kakó, vöfflu stemning,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason úr hljómsveitinni Ultra Mega Technobandið Stefán. Sigurður og trúbadorinn Svavar Knútur skipuleggja viðburðinn Sjónvarpslaus fimmtudagskvöld sem verður haldinn í fyrsta sinn á fimmtudaginn í Slippsalnum við Mýrargötu þar sem Nema Forum er til húsa.

„Við spiluðum þarna á Melodica Festival og urðum ástfangnir af staðnum. Þá vaknaði sú hugmynd að hafa þarna menningarviðburð á fimmtudagskvöldum,“ segir Sigurður Ásgeir.

„Salurinn er í Viktoríustíl, eins og blanda af hótelbar og forstofu hjá enskum 19. aldar landkönnuði. Þarna er kósí stemning sem ég hef ekki séð í sal á Íslandi.“

Fjölbreytt atriði verða í fyrirrúmi en þó í nokkurs konar dagskrár- eða kvöldvökuformi. Á hverju kvöldi verða atriði úr eftirfarandi flokkum: söngvaskáld, klassík eða djass, upplestur á ljóðum, ritverkum eða leiklestur og tónleikar með hljómsveit.

Á fyrsta kvöldinu stíga á svið Svavar Knútur, píanóleikarinn Marteinn Knaran, hljómsveitin Útidúr og fleiri gestir.

„Íslensk tónlistarmenning er orðin eitthvað svo rotin. Það er allt tengt við fyllirí á sama tíma og við eigum flottustu listamenn í heiminum miðað við höfðatölu. Við erum orðnir leiðir á þessu,“ segir Sigurður og hvetur fólk til að hvíla sig á sjónvarpinu eitt kvöld í viku eins og hér á árum áður.

Miðaverð er kr. 1.500 og er takmarkaður fjöldi á hvert kvöld. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 20.30 og stendur til kl. 23.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×