Innlent

Gnýr og slysahætta af hraðakstri í þjóðgarði

Ofan af Lyngdalsheiði Beinn og breiður vegur liggur nú af Lyngdalsheiði inn í friðlandið á Þingvöllum. Þjóðgarðsvörður segir ökumenn gleyma að draga úr hraðanum þegar komið sé inn á Gjábakkaveg.Mynd/Einar Sæmundsen
Ofan af Lyngdalsheiði Beinn og breiður vegur liggur nú af Lyngdalsheiði inn í friðlandið á Þingvöllum. Þjóðgarðsvörður segir ökumenn gleyma að draga úr hraðanum þegar komið sé inn á Gjábakkaveg.Mynd/Einar Sæmundsen

„Eftir að nýi Lyngdalsheiðarvegurinn milli Þingvalla og Laugarvatns var opnaður hefur hraði og hávaði frá umferð aukist mikið í þjóðgarðinum og um leið slysahætta,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.

Nýr vegur yfir Lyngdalsheiði var tekinn í notkun í haust. Í stað þess að beygt væri af þeim vegi á gatnamótum inn á Gjábakkaveg sem liggur inn í friðlandið eru vegirnir tveir nú í beinu framhaldi hvor af öðrum.

„Vegir beggja vegna þjóðgarðsins bera 90 kílómetra hraða og greinilegt er að bílstjórar þurfa að stilla sig þegar í þjóðgarðinn kemur og aka þar á löglegum 50 kílómetra hraða. Vegurinn gegnum þjóðgarðinn er mjög mjór og hlykkjóttur og útsýni afar takmarkað af hrauni og kjarri. Jafnframt þessu eru nokkur útskot og útsýnisstaðir þröngir og þar leynast bílar og fólk á ferli. Lítið þarf því út af að bera til að slys verði á veginum,“ segir Ólafur, sem kveður mestu hættuna vera austanmegin, í nágrenni Hrafnagjár.

Ólafur Örn Haraldsson

Vegagerðin og Þingvallanefnd hafa að sögn Ólafs með sér náið samstarf um aðgerðir til að draga úr umferðarhraða í þjóðgarðunum. Hann segir að gripið verði til margvíslegra ráðstafana í því skyni næsta vor.

Ólafur bendir á að kyrrð og friðsæld sé meðal þess sem eftirsóknarverðast sé í þjóðgarðinum. „Nú hafa orðið mikil umskipti þegar umferðin er mest í gegnum hann, ekki síst um helgar, en einmitt þá er flest fólk í þjóðgarðinum og vill njóta einstakrar náttúrufegurðar umhverfis Þingvallavatn,“ segir hann.

Gerð nýja vegarins um Lyng­dalsheiði var nokkuð umdeild þegar hann var í undirbúningi. Vísindamenn bentu á hættu á mengun frá umferð sem smám saman myndi leita út í Þingvallavatn. „Það drægi enn frekar úr gæðum vatnsins en verulega hefur dregið úr tærleika vatnsins á undanförnum árum.

Mengun frá umferð eykst með auknum hraða og er því enn ríkari ástæða til að ekið sé á löglegum hrað um þjóðgarðinn,“ segir þjóðgarðsvörður.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×