Innlent

Fjallabyggð sameinuð með göngum

héðinsfjarðargöng
héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöngin á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar verða opnuð í dag. Göngin stytta leiðina á milli bæjarfélaganna tveggja úr 62 kílómetrum í um 15 kílómetra og eru um 11 kílómetrar að lengd.

Þar af eru 3,7 kílómetrar á milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og um 6,9 kílómetrar þaðan til Ólafsfjarðar. Kostnaðurinn við göngin eru rúmir 12 milljarðar króna, en áætlaður upphafskostnaður var um 7,5 milljarðar.

G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir ástæðuna fyrir auknum kostnaði liggja í meiri vatnsaga en gert var ráð fyrir í útboði og nemur sá kostnaður um einum milljarði króna. Afganginn megi skýra með hækkun verðlags og gengis á verktímanum.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir göngin vera feiknamikinn áfanga og er bjartsýnn á framtíð bæjarfélaganna tveggja.

„Fyrir sveitarfélög sem eru í 240 kílómetra fjarlægð samgöngulega séð og 60 km fjarlægð að sumri til, þá skiptir svona lagað verulega miklu máli," segir Sigurður. Hann er viss um að göngin eigi eftir að borga sig og segir framtíð bæjanna vera í húfi.

Tröllaskaginn verður partur af hringveginum með tilkomu Héðinsfjarðarganganna og segir Sigurður það skipta gríðarlegu máli fyrir ferðaþjónustu á svæðinu þar sem Siglufjörður tengist nú inn í Eyjafjarðarsvæðið.

„Þetta er mikill léttir," segir hann. „Þetta hefur tekið mjög langan tíma og mikinn undirbúning, en sveitarfélög af þessari stærðargráðu verða að sameinast til þess að lifa af." Sigurður segir göngin vera grundvallar­atriði fyrir byggðarlögin og er ekki í nokkrum vafa um það að uppgangur eigi eftir að eiga sér stað í báðum byggðakjörnum.

„Lífsgæði fólks á þessum svæðum eiga eftir að gjörbreytast til hins betra," segir Sigurður.

[email protected]

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×