Innlent

„All out of luck“ í Leifsstöð

Hreindís Ylfa og Selma Björnsdóttir Rifu sig upp eldsnemma í flug til London en gripu í tómt eins og margir aðrir sem ætluðu frá Leifsstöð í gær til Evrópu.
Hreindís Ylfa og Selma Björnsdóttir Rifu sig upp eldsnemma í flug til London en gripu í tómt eins og margir aðrir sem ætluðu frá Leifsstöð í gær til Evrópu.

Öskufall frá Eyjafjallajökli lokaði flugvöllum í Englandi og hafði inntökupróf í leiklistarskóla af Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm. Fimleikastúlkur á leið til Finnlands brugðu á leik þrátt fyrir óvissuna.

„Það þýðir ekkert að pirra sig. Þetta eru bara náttúruhamfarir,“ sagði Selma Björnsdóttir söngkona sem var meðal fjölmargra sem ekki komust í flug frá landinu í gær vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli.

Um ellefu hundruð manns voru þegar mest lét í Leifsstöð í gærmorgun en fólkinu fækkaði þar jafnt og þétt eftir því sem ljósara varð að flugvellir á áfangastöðum þess í Evrópu myndu haldast lokaðir.

Með Selmu í för var söngkonan unga Hreindís Ylfa Garðarsdóttir Hólm sem var á leið í inntökupróf í leiklistarskóla í London. „Síðasti prufudagurinn er á morgun [í dag],“ sagði Hreindís, sem var enn vongóð þar sem hún stóð í röð með Selmu til að láta endurbóka flug sitt.

„Það er ekkert annað hægt að gera en að taka þessu með ró. Hvað á maður að gera annað?“ sagði Selma sem sjálf er á leið í leikstjóranám í Bristol.

„Ég er nú ekki í neinni hættu með það þótt ég hafi reyndar ætlað að nota helgina til að finna íbúð. Þetta kemur aðallega illa við hana sem er að fara í inntökupróf á morgun og búin að undirbúa sig og borga miða,“ sagði Selma og benti á Hreindísi. Um klukkustund síðar höfðu þær bókað flug út á sunnudag og inntökuprófið úr sögunni. Heppnin var ekki með þeim þennan dag.

[email protected]

Marleen Kaag Hollenska stúlkan Marleen Kaag býr í London og var strandaglópur eftir vikufrí á Íslandi. Marleen sagðist á leið á Nordica Hotel á kostnað Icelandair.
Monika Krumlová og Petr Kruml Þessi tékknesku feðgin höfðu ferðast um Ísland og Grænland og biðu þolin-móð eftir flugi til Kaupmannahafnar þaðan sem þau ætluðu heim til Prag.


Gerplustelpur Hópur fimleikastúlkna, meðal annars frá Selfossi og Kópavogi, var á leið á Norðurlandamót í Finnlandi. Gerplustúlkur brugðu á leik fyrir frönsk ungmenni sem voru hér í fjögurra daga vísindaferð. Fréttablaðið/Pjetur
Höfði að hallað Þeir sem voru í tengiflugi frá Ameríku til Evrópu og fastir í Leifsstöð voru orðnir lúnir eftir lengra ferðalag en stefnt var að.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×