Innlent

Vongóðir um flug til Norðurlandanna í dag

Aska frá Eyjafjallajökli hefur stöðvað flugumferð víða í Norður-Evrópu. Eldingar í gosstróknum voru mikið sjónarspil í fyrrinótt. Fréttablaðið/Vilhelm
Aska frá Eyjafjallajökli hefur stöðvað flugumferð víða í Norður-Evrópu. Eldingar í gosstróknum voru mikið sjónarspil í fyrrinótt. Fréttablaðið/Vilhelm
Milljónir flugfarþega eru enn strandaglópar vegna ösku frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Askan hafði engin áhrif á þotur sem flugu tilraunaflug yfir meginlandi Evrópu í gær. Mikill þrýstingur er á flugmálayfirvöld að aflétta flugbanni.

Flugsamgöngur voru áfram í lamasessi víðast hvar í Norður-Evrópu í gær vegna gjósku frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Icelandair og Iceland Express náðu þó að fljúga samtals sjö ferðir til Þrándheims í Noregi.

Vonir standa til að hægt verði að fljúga frá Íslandi til Norðurlandanna og Bandaríkjanna í dag. Icelandair hefur boðað að flogið verði til Stokkhólms, Óslóar og Tampere í Finnlandi. Iceland Express reiknar með að hægt verði að fljúga til Kaupmannahafnar, Berlínar, Tenerife og Alicante.

Milljónir ferðamanna eru strandaglópar um heim allan eftir að flugsamgöngur lömuðust á fimmtudag í síðustu viku vegna gjósku frá Eyjafjallajökli.

Samgönguyfirvöld í Evrópu vonast til að hægt verði að fljúga víða í Evrópu í dag eftir að breyttar vindáttir blésu öskunni frá Eyjafjallajökli að einhverju leyti frá meginlandinu. Alls er þó óvíst hvort og hvenær flugsamgöngur komast í eðlilegt horf.

Nokkur stór flugfélög fengu í gær leyfi til að fljúga tilraunaflug. Engar skemmdir komu í ljós á þotunum vegna gosefna. Forsvarsmenn flugfélaganna hafa gagnrýnt að engar mælingar hafi verið gerðar á magni ösku sem borist hafi yfir Evrópu. Einungis hafi verið stuðst við útreikninga um væntanlegt útbreiðslusvæði öskunnar.

Kostnaður flugfélaganna vegna flugbanns víða í Evrópu er talinn nema um 200 milljónum Bandaríkjadala, 25 milljörðum króna, á dag. Kostnaðurinn er því mögulega kominn vel yfir 100 milljarða króna, og mikill þrýstingur á flugmálayfirvöld að aflétta banninu, að hluta eða öllu leyti.

„Það er augljóst að þetta gengur ekki lengur. Við getum ekki bara beðið eftir því að öskuskýið hverfi," sagði Siim Kallas, talsmaður samgöngumála hjá Evrópusambandinu, í Brussel í gær. Samgönguráðherra Frakklands tilkynnti í gær að ráðherrar frá öllum ríkjum Evrópu sem lokanirnar hafa náð til muni funda um ástandið í dag.

Þótt eldgosið í Eyjafjallajökli hafi áhrif á flugsamgöngur víða í Evrópu gengu samgöngur við alþjóðlegu geimstöðina snurðulaust fyrir sig. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA reiknar með að geimferjan Discovery lendi í Flórída í Bandaríkjunum í dag.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×