Innlent

Ráðstefnan á íslenskum stól

Hönnunargripurinn íslenski stendur í röðum í ráðstefnusalnum. Hann var valinn með tilliti til útlits, þæginda, verðs og þess hve umhverfisvænn hann þykir.Nordicphotos / afp
Hönnunargripurinn íslenski stendur í röðum í ráðstefnusalnum. Hann var valinn með tilliti til útlits, þæginda, verðs og þess hve umhverfisvænn hann þykir.Nordicphotos / afp

 Íslenskur stóll eftir Erlu Sólveigu Gísladóttur er það húsgagn sem hvað mest ber á í blöðum og fréttatímum um heim allan um þessar mundir. Vel á þriðja þúsund eintaka af stólnum, sem kallast Bessi, prýða nefnilega ráðstefnusalinn þar sem loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram í Kaupmannahöfn.

„Það var mjög gaman að sjá hann þarna,“ segir Erla Sólveig, sem hannaði stólinn fyrir um sex árum. Stólarnir í Bella Center-ráðstefnuhöllinni eru framleiddir í Danmörku, en Bessinn er einnig framleiddur á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Danski framleiðandinn ákvað að bjóða í uppsetningu húsgagna í ráðstefnuhöllinni í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar. „Allir danskir húsgagnaframleiðendur fengu að bjóða í þetta. Stóllinn var margprófaður og síðan eftir margra mánaða streð var hann valinn,“ segir Erla Sólveig. Samkeppnin hafi verið afar hörð og eðlilega margir sem bitust um samning um sölu á vel á þriðja þúsund hönnunargripum.

Stóllinn var upphaflega með trésetu og trébaki á stálgrind en í fyrra var byrjað að framleiða hann með plastbaki og -setu. Ráðstefnustólarnir eru úr plasti með bólstraðri setu. „Hann er svolítið kameljón, hann getur litið mjög misjafnlega út eftir efnisvali og hvort þú bólstrar setuna eða bakið eða bara annaðhvort,“ segir Erla.

Erla telur að þessi eiginleiki hafi haft mikið að segja þegar kom að valinu í ráðstefnusalinn. „Þeir seldu hann þannig – af því að þetta er nú loftslagsráðstefna – að hann væri umhverfisvænn, vegna þess að það væri ódýrt að skipta til dæmis bakinu út fyrir trébak sem er dýrara. Þá er ekki allur stóllinn ónýtur.“

Erla hefur ekki nákvæma tölu á stólunum í salnum, né því hversu stóran samning var um að ræða. „En þetta hjálpar auðvitað eitthvað,“ segir hún.

Stóllinn er víðar en bara í Kaupmannahöfn, til dæmis má sjá hann í Alþingisskálanum og Viðeyjarstofu, auk þess sem hægt er að kaupa hann hjá Sóló-húsgögnum á Íslandi og í Epal.

En hvaðan kemur nafnið? „Það er nú það. Bessastöðum? Eitthvað varð gripurinn að heita og þetta nafn er líka þjált á dönsku,“ segir [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×