Menning

Ímynd Reykjavíkur í kreppu

16 elskendur Friðgeir, Karl, Aðalbjörg, Eva, Davíð og Ylfa vinna hjá Íkeaferðum í Örfirisey.Fréttablaðið/Vilhelm
16 elskendur Friðgeir, Karl, Aðalbjörg, Eva, Davíð og Ylfa vinna hjá Íkeaferðum í Örfirisey.Fréttablaðið/Vilhelm

Sviðslistahópurinn 16 elskendur býður áhorfendum á ferðaskrifstofuna Íkea-ferðir í dag.

„Við lögðum upp með að fjalla um ímynd Reykjavíkur og út frá því fórum við að skoða ímynd og yfirborð annarra staða," segir Eva Rún Snorradóttir, ein elskendanna.

„Svo kom kreppa og það gerði ímyndina öllu áhugaverðari. Við fengum hugmyndina fyrir um það bil ári síðan þegar Reykjavík fylltist af sígaunum. Svo tveimur dögum seinna voru þeir sendir til Noregs. Í einn dag var ímynd Reykjavíkur af evrópskri stórborg, en svo varð hún aftur að litlu Reykjavík."

Skýrslan um ímynd Íslands varð þeim mikil uppspretta hugmynda.

„Hún er svo rosalega alhæfingagjörn og fellur í þá gryfju að segja að Ísland sé frábært og við séum frjáls náttúrubörn sem leikum okkur á ströndinni. Þetta gamla klassíska," segir Eva.

En hvernig tengist það IKEA? „IKEA er alltaf með skyndilausnir og setur allt upp í einingar. Við erum í raun að nota strúktúrinn í IKEA-verslunum og þá hugmyndafræði IKEA að fletja hlutina út." Eva tekur fram að þau eru ekki styrkt af fyrirtækinu.

Hægt er að panta miða í gegnum tölvupóst á [email protected] og í síma 659-4263. Sýningar eru um helgina og frá 10.-16. september. Miðaverð er. 1990 krónur. - kbs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×