Innlent

Samtals 32 ára fangelsi í Pólstjörnumáli

Fáskrúðsfjarðarmál, skútusmygl, dómur
Fáskrúðsfjarðarmál, skútusmygl, dómur
Sex karlmenn voru í gær dæmdir í svokölluðu Pólstjörnumáli. Um er að ræða eitt umfangsmesta smyglmál á fíkniefnum hér á landi þegar hinir dæmdu reyndu að smygla til landsins 23 kílóum og 562,73 grömmum af amfetamíni, 13 kílóum og 947,45 grömmum af e-töfludufti og 1.746 e-töflum til landsins. Fíkniefnin fluttu þeir hingað með skútu er lagði að bryggju í Fáskrúðsfjarðarhöfn að morgni fimmtudagsins 20. september. Lögregla lagði hald á fíkniefnin sem fundust við leit í skútunni.

Sá sem þyngstan dóm hlaut var Einar Jökull Einarsson. Hann var dæmdur í níu og hálfs árs fangelsi. Alvar Óskarsson, var dæmdur í sjö ára fangelsi. Guðbjarni Traustason var dæmdur í sjö ára og fimm mánaða fangelsi, Marinó Einar Árnason í fimm og hálfs árs fangelsi og Bjarni Hrafnkelsson, í átján mánaða fangelsi. Sá sjötti sem var ákærður í málinu var dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi. Samtals voru mennirnir því dæmdir í ríflega 32 ára fangelsi.

Samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms þótti sannað með játningu Alvars, Einars Jökuls, Guðbjarna og Marinós Einars að þeir stóðu saman að fíkniefnainnflutningnum. Þáttur hvers hinna dæmdu í skipulagningu og framkvæmd sameiginlegs brots er mjög misjafn. Einar Jökull játaði að hafa skipulagt innflutninginn. Guðbjarni og Alvar fluttu efnin yfir hafið á skútunni. Marinó Einar átti að taka á móti fíkniefnunum í Fáskrúðsfjarðarhöfn og Bjarni bjó um fíkniefnin í Kaupmannahöfn. Sá sjötti sem hafði tekið að sér að fela efnin á sumarbústaðalandi í Rangárvallasýslu var dæmdur á skilorði, en efnin komust aldrei í hendur hans.

Auk ofangreindra refsinga var mönnunum sex gert að greiða á níundu milljón króna í málsvarnarlaun og sakarkostnað.

Allir eiga hinir dæmdu brotaferil aða baki. Má þar nefna dóma fyrir fíkniefnabrot, líkamsárásir, þjófnaði og eignaspjöll.

Hinir dæmdu hafa nú til skoðunar hvort þeir muni áfrýja dómum sínum til Hæstaréttar. Til þess hafa þeir fjórar vikur.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×