Danir styrkja dönskukennslu á Íslandi 1. mars 2007 18:15 Þorgerður og Bertel við undirritun samningsins. MYND/Menntamálaráðuneytið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Bertel Haarder, menntamálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag, 1. mars 2007, samning milli landanna um sérstakan stuðning við dönskukennslu á Íslandi. Samningurinn nær til fimm ára, frá 1. ágúst 2007 - 31. júlí 2011. Fjárveitingar Dana til þessa fimm ára verkefnis nema um 30 milljónum íslenskra króna árlega en fjárframlag Íslendinga 6 milljónum. Í samningnum er meðal annars kveðið á um ráðningu dansks lektors eða annars sendikennara við Kennaraháskóla Íslands, tveggja danskra farkennara fyrir grunnskóla landsins, aðstoðarkennara við framhaldsskóla og sérstök verkefni á sviði endurmenntunar kennara og námsefnisgerðar. Einnig er í samningnum kveðið á um árlegar styrkveitingar til íslenskra nemenda í dönskunámi á háskólastigi til námsferða til Danmerkur. Upphaf samningsins má rekja til samstarfsverkefnis landanna um eflingu dönskukennslu og miðlun danskrar menningar á Íslandi frá árinu 1996 sem dönsk stjórnvöld hafa fjármagnað allar götur síðan. Fjárveitingar Dana til þessa verkefnis hafa árlega numið um 20 milljónum íslenskra króna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Innlent „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Innlent Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Innlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Innlent Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Sjá meira