Lífið

Til hvers er menning?

Málþingið á Bifröst hefst kl.10.00 til 16.00 og er opið öllu áhugafólki um menningu. Ráðstefnugjald er 2.500 kr. og innifalið er hádegismatur og kaffi.
Málþingið á Bifröst hefst kl.10.00 til 16.00 og er opið öllu áhugafólki um menningu. Ráðstefnugjald er 2.500 kr. og innifalið er hádegismatur og kaffi.

Menningarráð Vesturlands og Háskólinn á Bifröst boða til ráðstefnu um menningu á Vesturlandi. Á Vesturlandi hefur menning blómstrað allt frá landnámi og eiga fáir landshlutar jafn sterka menningararfleifð. Í dag stunda myndlistarmenn og handverksfólk vinnu sína í héraði, starfræktir eru kröftugir tónlistarskólar, söngstarf og ritlist blómstrar og svo mætti lengi telja.

En til hvers er menning eiginlega og hvaða hlutverki gegnir hún í samfélagi eins og á Vesturlandi? Hvers virði er menning og er virkilega hægt að græða á henni? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem fjallað verður um á ráðstefnu um menningu á Vesturlandi sem haldin verður á Bifröst af Menningarráði Vesturlands og Háskólanum á Bifröst laugardaginn 14. október.

Á málþinginu mun Njörður Sigurjónsson, doktorsnemi við City University í London og lektor við Háskólann á Bifröst halda fyrirlestur og stýra umræðum undir nafninu: Menning, spenning - fyrir hvern? Kjartan Ragnarsson mun fjalla um stofnun og rekstur Landnámssetursins. Bárður Örn Gunnarsson, markaðsstjóri VÍS mun fjalla um af hverju fyrirtæki eigi að styrkja menningu og Elísabet Haraldsdóttir, mun kynna Menningarráð Vesturlands.

Tónlist, myndlist og listhandverk verður stór hluti ráðstefnunnar að þessu sinni. Styrkþegar Menningarráðs verða áberandi. Nemendur úr Grundaskóla á Akranesi flytja tónlist en þau hlutu styrk fyrir verkefnið Ungur gamall. Þá mun Elísa Vilbergsdóttir, sópransöngkona, flytja nokkur lög við undirleik Jónínu Ernu Arnardóttur frá Borgarnesi sem einnig hlaut styrk úr sjóðnum. Þess má geta að Elísa kemur sérstaklega frá Þýskalandi vegna þessa viðburðar. Kjartan Ragnarsson sem kynnir Landnámssetrið í Borgarnesi og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir hlutu hæsta styrk Menningarráðs vegna Landnámssetursins.

Myndlista- og listhandverksmenn munu halda sýningu samhliða ráðstefnunni: Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Lára Gunnarsdóttir úr Stykkishólmi, Snjólaug Guðmundsdóttir frá Brúarlandi, Dýrfinna Torfadóttir frá Akranesi, Ingibjörg Ágústsdóttir frá Stykkishólmi og Sigríður Erla Gunnarsdóttir sem kynnir verkefni unnin úr Búðardalsleir.

Málþingið hefst kl.10.00 til 16.00 og er opið öllu áhugafólki um menningu. Ráðstefnugjald er 2.500 kr. og innifalið er hádegismatur og kaffi.

Skráning fer fram á heimasíðu Bifrastar http://www.bifrost.is á netfanginu [email protected] eða í síma 433 3000.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×