Lífið

Sirrý í Ísland í bítið

Sigríður Arnardóttir - Sirrý - hefur verið ráðin til starfa hjá 365 miðlum og tekur við umsjón morgunþáttarins Ísland í bítið á NFS og Stöð 2 ásamt Heimi Karlssyni. Sigríður, sem á að baki langan og farsælan feril í íslenskum fjölmiðlum, birtist fyrst á skjánum við hlið Heimis í næstu viku, nánar tiltekið á föstudaginn 17. febrúar.

Það þarf vart að kynna Sigríði til sögunnar. Hún hefur um árabil starfað við fjölmiðla á Íslandi og komið þar óvenju víða við. Kunnust eru hún að öllum líkindum fyrir spjallþátt sinn Sirrý - sem ítrekað var tilnefndur til Eddu-verðlauna. Þátturinn var í loftinu í 5 ár en áður en hann hóf göngu sína gat Sigríður sér gott orð sem ritstjóri Vikunnar. Þá hefur Sigríður einnig unnið að dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið og -sjónvarp og var sem kunnugt er þula í Sjónvarpinu hér á árum áður.

Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, sem verið hefur meðstjórnandi að Íslandi í bítið síðustu mánuði, snýr sér að öðrum spennandi verkefnum fyrir NFS og mun þar á meðal koma áfram við sögu í Íslandi í bítið.

Ísland í bítið er fyrsti og eini íslenski morgunþátturinn sem sýndur er í íslensku sjónvarpi á virkum dögum. Allt síðan Stöð 2 braut blað í sögu íslensks sjónvarps með því að hefja útsendingar á morgunsjónvarpi árið 1999 hefur Ísland í bítið skipað fastan sess í lífsmynstri fjölda landsmanna. Ísland í bítið er fjölbreyttur fréttatengdur dægurmálaþáttur þar sem fjallað er um það sem efst er á baugi hverju sinni í landinu. Umfjöllun um allt milli himins og jarðar; matur, ráðgjöf, umræða, tíska, stjórnmál og gamanmál. Fréttir á heila og hálfa tímanum.

Ísland í bítið er sent í opinni dagskrá út á NFS og Stöð 2 alla virka morgna klukkan 6:58 - 9:00. Póstfang þáttarins er [email protected].








Fleiri fréttir

Sjá meira


×