Skoðun

Þarf að yngja upp?

Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Rétt eins og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, sagði í Kastljósinu í gær er baráttan um borgina hafin. Þingið er farið í frí og stjórnmálafréttir úr þeim geira verða fátíðari. Þess í stað munu berast okkur fréttir af því hvernig gengur í samningaviðræðum flokkanna sem mynda R-listann og hverjir vilja leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum sem verða næsta vor.

Það sem einna mest hefur verið rætt um síðan á laugardag, þegar viðtal við Gísla Martein Baldursson birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, er hvort hann verði næsta "borgarstjórnarefni" Sjálfstæðismanna. Reyndar er fyrir löngu farið að ræða um slíkt sem möguleika, eða óskhyggju. Fleiri en einn og tveir fastagestir spjallþátta ýmiskonar hafa útlistað hann sem helstu von Sjálfstæðismanna til að bjarga Reykjavíkurborg frá enn einu kjörtímabili undir stjórn Reykjavíkurlistans.

Gísli Marteinn er ungur, nokkuð óreyndur sem stjórnmálamaður þrátt fyrir að vera nú fyrsti varaborgarfulltrúi og því oft á fundum borgarstjórnar. Það er bara ekki sá Gísli sem við heyrum um, þekkjum og elskum, eða elskum að hata. Við, almenningur, þekkjum spjallþáttastjórnandann Gísla Martein, Eurovisionkynnirinn Gísla Martein, eða munum eftir honum úr Kastljósinu. Næstum því hvert einasta mannsbarn hér á Íslandi veit hver maðurinn er. Það eru voðalega fáir sem vita fyrir hvað hann stendur í pólitík.

Allt frá því um síðustu alþingiskosningar hafa verið háværar raddir um mikilvægi þess að hafa unga fulltrúa í stjórnmálum. Það er talinn kostur að vera ungur. Hugsanlega því yngri fulltrúar séu ekki eins líklegir til að vera tengdir "flokkaspillingunni" sem sannarlega er til í hugum fólks, hvað svo sem viðkemur raunveruleikanum. Því er það talið Gísla til tekna að vera ungur, myndarlegur og þekktur.

Að vera þekktur kom sér vel fyrir núverandi fylkisstjóra í Kaliforníu. Það hefur ekki reynst jafn drjúgt fyrir menn hér heima. Eyþór Arnalds bauð sig fram í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar eftir að hafa verið varaborgarfulltrúi. Tónlistarfrægðin dugði ekki til. Jakob Frímann tók svo þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir síðustu alþingiskosningar. Það dugði honum ekki að allir elska Stuðmenn.

Það er marg mjög frambærilegt fólk í Sjálfstæðisflokknum sem ætlar sér stóra hluti í komandi prófkjöri. Vonandi fyrir þann tíma verða kjósendur búin að fá að kynnast stjórnmálamanninum Gísla Marteini. Annars vegar vegna þess að það er aldrei gott að kjósa eitthvað sem maður veit ekki hvað er. Hins vegar hans vegna, því frægðin ein og sér er ekki líkleg til að skila honum mörgum atkvæðum ef eitthvað er að marka söguna.

Svanborg Sigmarsdóttir - [email protected]




Skoðun

Sjá meira


×