Skoðun

Látum brotin ekki fyrnast

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Fjórtán þúsund manns hafa skrifað undir stuðning við frumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar alþingismanns um að fyrning kynferðsbrota gegn börnum verði felld niður í íslensku réttarkerfi. Allsherjarnefnd hefur haft frumvarpið til meðferðar í meira en ár og enn er ekki útséð um hvort það fær afgreiðslu áður en þingmenn halda í sumarfrí. Þar á bæ er ekkert verið að flýta sér.

Kynferðisbrot gegn börnum er viðurstyggilegur glæpur. Þar er fullorðinn einstaklingur að svipta barn æsku sinni og notar traust þess og trúnað til að brjóta það sjálft niður, jafnvel fyrir lífstíð.

Fólk hefur fylgst agndofa með ýmsum dómum sem fallið hafa í kynferðisbrotamálum gegn börnum á undanförnum árum þar sem linkindin hefur ráðið för og lagabókstafurinn verið notaður glæpamanninum í hag.

Þó svo að öll brot fyrnist með tímanum nema morð ættu önnur lögmál að gilda um kynferðisbrot gegn börnum. Þar er fullorðinn einstaklingur að nýta sér veika stöðu barns sem á sér ekki undankomu auðið. Lítið barn gengur ekki inn á lögreglustöð og kærir einhvern nákominn. Það tekur yfirleitt mörg ár eða áratugi fyrir þann sem fyrir níðingsskapnum verður að viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum það sem hann hefur upplifað. Angistin sem fylgir öllu þessu ferli er svo djúpstæð.

Undirskriftirnar fjórtán þúsund sýna ótvírætt að almenningur lýsir frati á núgildandi lög sem hljóða upp á að þessi brot fyrnist á fimm til fimmtán árum eftir að barnið hefur náð fjórtán ára aldri. Í nágrannalöndunum er þessum málum fyrir komið á annan veg. Þar fyrnast þessi brot mun seinna en hér tíðkast.

Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í íslensku samfélagi hefur komið æ meira upp á yfirborðið á seinni árum og þó er hætt við að aðeins toppurinn á ísjakanum sé kominn í ljós. Skýrslur frá samtökunum Stígamótum sýna að um helmingur þeirra sem þangað leita vegna slíkra mála eru eldri en 30 ára. Það þýðir einfaldlega að gerandinn er sloppinn og brot hans fyrnt, jafnvel þótt það hafi verið af grófasta tagi. Í því felst mikið óréttlæti.

Hinn ungi og skeleggi þingmaður Ágúst Ólafur á heiður skilinn fyrir að leggja þetta mál fram. Vonandi fær það farsæla afgreiðslu hjá hinu háa alþingi og það sem fyrst. Það er þýðingarmeira mál en svo að það megi sofna inni í einhverri nefnd bara vegna þess að stjórnarandstöðuþingmaður talar fyrir því. Það skiptir allt of mörg fórnarlömb máli til að hægt sé að nota það sem baráttutæki í slag stjórnar og stjórnarandstöðu.

Gunnþóra Gunnarsdóttir - [email protected]




Skoðun

Sjá meira


×