Enn óvissa um Þórólf 5. nóvember 2004 00:01
Stuðningur við Þórólf Árnason borgarstjóra verður mældur að lokinni yfirreið hans í fjölmiðlum þar sem hann reynir að skýra sín mál. Framtíð hans í borgarstjórastólnum ræðst að hluta af þeirri niðurstöðu. Þórólfur mætti eins og boðað hafði verið í viðtal hjá Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Þórhalli Gunnarssyni í Íslandi í dag í gær. Þar svaraði hann ítrekuðum spurningum um hugsanlega afsögn samhliða því að símakönnun var framkvæmd. Þórólfur varð klökkur þegar niðurstaðan lá fyrir þar sem 65% þátttakenda sögðust vilja að hann héldi áfram sem borgarstjóri en 35% sögðust vilja að hann segði af sér. Það er ljóst að Þórólfur nýtur nokkurar samúðar en það er óljóst hvort það dugi honum til framhaldslífs sem borgarstjóri. Á morgun verða opnuviðtöl við hann í blöðunum og fréttastofa hefur heimildir fyrir því að staða hans gagnvart borgarbúum verði könnuð í kjölfarið. Komi í ljós að Þórólfur njóti stuðnings meirihluta borgarbúa er krafa Vinstri grænna um að hann hverfi úr borgarstjórn orðin langsóttari. Vinstri grænir hafa hins vegar ekki sett það sem afarkost að hann hverfi úr embætti. Þeir hafa því enn svigrúm til að bakka.
Fréttir Innlent Samráð olíufélaga Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Innlent Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild Erlent „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Innlent Rússar segja til hvers annars líkt og á tímum Stalíns Erlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Fleiri fréttir Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Sjá meira