Lífið

Líður vel í Þingholtunum

Uppáhaldshúsið húsið hans Guðjóns Davíðs Karlssonar leiklistarnema, betur þekktur sem Gói, er húsið sem hann býr í á Bergstaðarstrætinu. "Mér finnst húsið mjög notalegt og þar er bara svo gott að vera, úti er góður garður og alltaf sól. Foreldrar mínir búa í þessu húsi og bý ég í kjallaranum og þangað niður kemur alltaf ljómandi góður ilmur úr eldhúsinu. Ég nota þá tækifærið og fer upp að borða til þeirra og það finnst mér alveg yndislegt. Svo er dásamlegt að sitja úti í garðinum og hlusta á fuglasönginn og ég tala nú ekki um eins og veðrið er búið að vera undanfarna daga," segir hann. Gói segist alltaf hafa búið á svæði 101 og líkað það vel. "Það má eiginlega segja að uppáhaldshúsin mín séu öll hérna í kring. Mér finnst Þingholtin frábær staður sem virkilega gott er á búa á. Maður finnur hvorki fyrir flug- né bílaumferð á svæðinu þó maður sé bæði í nálægð við stórar umferðargötur og Reykjavíkurflugvöll. Hér er líka gróðursælt og hefur maður á tilfinningunni að maður búi í útlöndum innan um öll þessi háu tré. Það er auðvitað draumurinn að eignast hús á þessum slóðum en þangað til ég klára skólann er gott að búa hjá mömmu og pabba," segir hann. Þessa dagana standa yfir sýningar á söngleiknum Hárinu en í henni leikur Gói stórt hlutverk. "Þetta er það ótrúlegasta sem ég hef orðið vitni að, það er þvílík stemming á hverri einustu sýningu. Fólk tekur undir og rýkur á fætur í lokin og fagnar þannig að maður er bara djúpt snortinn. Allir virðast skemmta sér mjög vel og þar með er takmarkinu náð. Nú svo er ég nýbyrjaður aftur í skólanum eftir sumarfrí og erum við að æfa fyrir sýningar á leikritinu Draumur á Jónsmessunótt eftir Shakespeare, sem á að frumsýna í byrjun október, " segir hann. [email protected]





Fleiri fréttir

Sjá meira


×