Viðskipti Sjóðsstaða sterkari en áætlað var þrátt fyrir fjórðu bylgjuna Handbært fé frá rekstri flugfélagsins Play er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir eftir fyrri árshelming. Þá er sjóðsstaða sterkari og eftirspurn eftir flugi sögð vaxandi. Viðskipti innlent 31.8.2021 19:18 Landsbankinn ríður á vaðið og hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,20 prósentustig. Tæp vika er liðin frá stýrivaxtahækkun Seðlabankans og er Landsbankinn fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna vaxtabreytingar í kjölfarið. Viðskipti innlent 31.8.2021 17:42 Frosti nýr framkvæmdastjóri Olís Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. Viðskipti innlent 31.8.2021 16:33 Nýjasta leik CCP tekið vel í Kína Á þremur vikum hafa þrjár milljónir manna spilað nýjasta leik CCP í Kína. Fyrirtækið segir viðtökurnar við símaleiknum EVE Echoes frábærar. Viðskipti innlent 31.8.2021 16:05 Ragnheiður Erlingsdóttir nýr framkvæmdastjóri Zik Zak Ragnheiður Erlingsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Zik Zak. Hún tekur við starfinu af Skúla Malmquist, sem var ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins í júlí. Viðskipti innlent 31.8.2021 15:47 Ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Gunnar Örn Petersen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Hann tekur við starfinu af Elíasi Blöndal Guðjónssyni. Viðskipti innlent 31.8.2021 10:58 Neytendur alls ekki réttlausir standi þeir frammi fyrir alltof háum reikningi frá verktaka Neytendasamtökin aðstoða á annað hundruð einstaklinga á ári hverju sem telja sig hlunnfarna af verktökum. Oftast varða málin ágreining um upphæðir en milljónir króna geta verið á milli þess sem verktakinn fer fram á og þess sem kaupandinn er tilbúinn að greiða. Neytendur 30.8.2021 21:01 Makrílafli innan lögsögu Íslands dregist verulega saman í sumar Makrílstofninn í Norðaustur-Atlantshafi mælist nærri sextíu prósentum minni en í fyrra og hefur ekki mælst minni í áratug. Makrílafli innan lögsögu Íslands hefur einnig snarminnkað í sumar og hafa útgerðir þurft að sækja megnið af makrílnum alla leið í Smuguna. Viðskipti innlent 30.8.2021 20:58 Samningar lausir og framhaldið velti á umbótum hjá KSÍ Icelandair fundaði með forsvarsfólki Knattspyrnusambands Íslands í dag um stöðu mála innan sambandsins. Samningar milli Icelandair og KSÍ eru nú lausir en Icelandair segir að sambandið verði að sýna fram á áætlun um umbætur áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi samstarf. Viðskipti innlent 30.8.2021 17:32 Námsmenn sækja sífellt meira í rafbækur Allt að 60% ódýrara fyrir námsmenn að nýta sér rafbóksölu eða leigu. Samstarf 30.8.2021 16:01 Stuðningsaðili óskar eftir samtali við KSÍ vegna frétta síðustu daga Coca-Cola á Íslandi, CCEP, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Knattspyrnusambands Íslands í íslensku samfélagi í kjölfar frétta síðustu daga. Hefur félagið í bréfi óskað eftir samtali við fulltrúa KSÍ um málið. Viðskipti innlent 30.8.2021 13:54 Börnum bannað að spila meira en þrjá tíma í viku í Kína Börn í Kína mega einungis spila netleiki í þrjá tíma á viku. Leikjafyrirtækjum hefur verið gert að ganga úr skugga um að börn geti ekki spilað slíka leiki nema frá klukkan átta til níu að kvöldi á föstudags, laugardags og sunnudagskvöldum. Viðskipti erlent 30.8.2021 13:25 Ráðinn viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera Datera hefur ráðið til sín Hjalta Má Einarsson sem viðskiptaþróunarstjóra og hefur hann þegar hafið störf. Viðskipti innlent 30.8.2021 11:43 Kafaði ofan í hvað einkenni ferðir Íslendinga til Kanarí „Það er alveg skýrt að fyrir Íslendinga hefur Kanarí fyrst og fremst aðdráttarafl vegna sólarinnar og strandanna. Það er miklu minni áhugi á menningartengdri ferðaþjónustu og söfnin, heldur en ég hafði fyrirfram gert ráð fyrir.“ Viðskipti innlent 30.8.2021 09:02 Á leið í útrás en allt hófst þetta í háskólanum „Við fórum af stað sem ungt teymi með ýmislegt ólært. Okkur vantaði meiri breidd í hópinn og höfðum ekki nægilega mikla þekkingu í sölu- og markaðstengdum málum, þar af leiðandi lentum við í byrjunarörðugleikum við að koma vörunni á markað. Þá tók við erfitt tímabil þar sem við misstum gott fólk frá okkur,“ segir Aðalheiður Hreinsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda LearnCove. „Þessum tíma fylgdi þó mikill lærdómur og við erum reynslunni ríkari ásamt því að hafa bætt við okkur öflugum einstaklingum í sölu- og markaðshliðinni. Við erum virkilega ánægð með breidd hópsins í dag og hversu vel hann nær saman,“ segir Aðalheiður. Atvinnulíf 30.8.2021 07:00 Vakin með knúsi en tjaldútilegurnar með eiginmanninum bestar Alma Dagbjört Möller landlæknir fær knús frá hundunum sínum þegar hún vaknar eldsnemma á morgnana og hlakkar alltaf til dagsins. Hún segir tjaldútilegu með eiginmanninum á hálendinu bestu leiðina til að aftengja sig frá daglegu amstri og í sumar fékk hún það nýja hlutverk að fara í morgungöngur með tvíburaömmustelpur í vagni. Í vinnunni gerir hún það sama og svo margir: Skrifar niður lista yfir helstu verkefni dagsins. Atvinnulíf 28.8.2021 10:01 Meðallaun hækkað um 204 prósent frá árinu 2000 Meðallaun á Íslandi hafa hækkað um 204% í íslenskum krónum á árunum 2000 til 2020 samkvæmt tölum OECD. Það er mun meiri hækkun en í nálægum löndum en næsta ríki í röðinni er Noregur með 114% hækkun í norskum krónum. Viðskipti innlent 27.8.2021 15:00 Stjórnendur Kviku greiddu 70 prósent lægri fjárhæðir fyrir hlutabréfin Sex æðstu stjórnendur Kviku banka seldu hlutabréf í bankanum fyrir hundruð milljóna króna á gengi dagsins í gær. Á sama tíma nýttu stjórnendur sér áskriftaréttindi og keyptu fyrir um hundrað og fimmtíu milljónir króna í bankanum. Almennir kaupendur greiddu þannig um þrisvar sinnum meira fyrir hlutabréfin í bankanum í gær en stjórnendurnir. Viðskipti innlent 27.8.2021 15:00 Origo kaupir í verslun á Akureyri til að mæta eftirspurn eftir Apple-vörum Origo hefur keypt 70% eignarhlut í Eldhafi sem er innflutningsaðili á Apple-vörum og rekur samnefnda verslun á Akureyri. Er markmiðið með kaupunum að auka breiddina í vöruúrvali Origo. Viðskipti innlent 27.8.2021 14:16 Eðvald fer fyrir nýrri deild Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn forstöðumaður hagdeildar á fjármálasviði Kviku banka en deildin er ný á fjármálasviði bankans. Viðskipti innlent 27.8.2021 13:27 Matvælastofnun varar við neyslu á þremur vörum frá Lýsi Matvælastofnun varar við neyslu þriggja fæðubótarefna frá Lýsi sem innihalda ólöglega varnarefnið etýlen oxíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni en Lýsi hefur innkallað allar framleiðslulotur af Sportþrennu, Lýsi Omega3 kalk/D-vítamín og Omega3 Calcium/Vitamin D. Viðskipti innlent 27.8.2021 13:01 Hugmyndir um eigin getu takmarkast af eigin hugarfari Ingvar Jónsson PPC markþjálfi hefur útskrifað yfir fjögurhundruð markþjálfa. Samstarf 27.8.2021 11:55 Hörður og Ólöf leiða nýjan viðskiptamiðil á Vísi Nýr miðill sem sérhæfir sig einkum í fréttum um íslenskt viðskiptalíf og efnahagsmál hefur göngu sína á Vísi á næstunni. Fyrir miðlinum fara þau Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir en auk þeirra kemur til starfa viðskiptablaðamaðurinn Þorsteinn Friðrik Halldórsson. Um verður að ræða fréttamiðil í áskrift. Viðskipti innlent 27.8.2021 11:02 Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum Samkomulag sem tæknirisinn Apple hefur gert við hóp hugbúnaðarfyrirtækja gerir þeim síðarnefndu kleift að rukka viðskiptavini snjallforrita þeirra beint í stað þess að nota greiðslukerfi Apple. Málaferli standa nú yfir þar sem Apple er sakað um samkeppnisbrot vegna viðskiptahátta forritaverslunar fyrirtækisins. Viðskipti erlent 27.8.2021 10:45 Skiptir máli að fá ferðamenn einnig um Egilsstaðaflugvöll Austfirðingar kalla eftir því að Egilsstaðaflugvöllur verði þróaður sem millilandaflugvöllur og þannig opnaðar fleiri gáttir fyrir ferðamenn inn í landið. Viðskipti innlent 27.8.2021 10:34 Vinnustaðir fyrir og eftir Covid Um allan heim eru vinnustaðir að móta sér hugmyndir og stefnur um hvernig best er að haga til framtíðinni þar sem fjarvinna er orðin hluti af veruleika atvinnulífsins. BBC Worklife leitaði til nokkurra sérfræðinga eftir áliti á því hvaða breytingar við munum helst sjá í kjölfar Covid. Atvinnulíf 27.8.2021 07:00 Seldi launabónusinn fyrir 95 milljarða króna Tim Cook forstjóri Apple hagnaðist um 750 milljónir dollara eða 95 milljarða króna þegar hann seldi fimm milljónir hluta í fyrirtækinu, sem hann fékk sem launauppbót eftir að hafa verið forstjóri Apple í tíu ár. Viðskipti erlent 27.8.2021 06:38 Forstjóri Kviku meðal þeirra sem seldu bréf fyrir tugi milljóna Nokkrir af æðstu stjórnendum Kviku seldu bréf fyrir tugi milljóna króna í dag. Marínó Örn Tryggvason forstjóri keypti 2,5 milljónir hluta á genginu 7,16 krónur á hlutinn en seldi á sama tíma fjórar milljónir hluta á 23,5 krónur á hlutinn. Hann kom út í 70 milljónum í plús með viðskiptum dagsins. Viðskipti innlent 26.8.2021 20:01 Stofnandi Creditinfo ráðinn forstjóri SaltPay Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, hefur verið ráðinn nýr forstjóri greiðslumiðlunarfyrirtækisins SaltPay. Áður sat Reynir í stjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 26.8.2021 18:27 Tjörvi hættir eftir nítján ár hjá Bændasamtökunum Tjörvi Bjarnason, sviðstjóri útgáfu- og kynningarsviðs Bændasamtakanna, hefur sagt upp störfum eftir nítján ár hjá samtökunum. Hann hefur stýrt rekstri Bændablaðsins í fjölda ára og unnið sem almannatengill fyrir bændur svo fátt eitt sé nefnt. Viðskipti innlent 26.8.2021 18:26 « ‹ 234 235 236 237 238 239 240 241 242 … 334 ›
Sjóðsstaða sterkari en áætlað var þrátt fyrir fjórðu bylgjuna Handbært fé frá rekstri flugfélagsins Play er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir eftir fyrri árshelming. Þá er sjóðsstaða sterkari og eftirspurn eftir flugi sögð vaxandi. Viðskipti innlent 31.8.2021 19:18
Landsbankinn ríður á vaðið og hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,20 prósentustig. Tæp vika er liðin frá stýrivaxtahækkun Seðlabankans og er Landsbankinn fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna vaxtabreytingar í kjölfarið. Viðskipti innlent 31.8.2021 17:42
Frosti nýr framkvæmdastjóri Olís Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. Viðskipti innlent 31.8.2021 16:33
Nýjasta leik CCP tekið vel í Kína Á þremur vikum hafa þrjár milljónir manna spilað nýjasta leik CCP í Kína. Fyrirtækið segir viðtökurnar við símaleiknum EVE Echoes frábærar. Viðskipti innlent 31.8.2021 16:05
Ragnheiður Erlingsdóttir nýr framkvæmdastjóri Zik Zak Ragnheiður Erlingsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Zik Zak. Hún tekur við starfinu af Skúla Malmquist, sem var ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins í júlí. Viðskipti innlent 31.8.2021 15:47
Ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Gunnar Örn Petersen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Hann tekur við starfinu af Elíasi Blöndal Guðjónssyni. Viðskipti innlent 31.8.2021 10:58
Neytendur alls ekki réttlausir standi þeir frammi fyrir alltof háum reikningi frá verktaka Neytendasamtökin aðstoða á annað hundruð einstaklinga á ári hverju sem telja sig hlunnfarna af verktökum. Oftast varða málin ágreining um upphæðir en milljónir króna geta verið á milli þess sem verktakinn fer fram á og þess sem kaupandinn er tilbúinn að greiða. Neytendur 30.8.2021 21:01
Makrílafli innan lögsögu Íslands dregist verulega saman í sumar Makrílstofninn í Norðaustur-Atlantshafi mælist nærri sextíu prósentum minni en í fyrra og hefur ekki mælst minni í áratug. Makrílafli innan lögsögu Íslands hefur einnig snarminnkað í sumar og hafa útgerðir þurft að sækja megnið af makrílnum alla leið í Smuguna. Viðskipti innlent 30.8.2021 20:58
Samningar lausir og framhaldið velti á umbótum hjá KSÍ Icelandair fundaði með forsvarsfólki Knattspyrnusambands Íslands í dag um stöðu mála innan sambandsins. Samningar milli Icelandair og KSÍ eru nú lausir en Icelandair segir að sambandið verði að sýna fram á áætlun um umbætur áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi samstarf. Viðskipti innlent 30.8.2021 17:32
Námsmenn sækja sífellt meira í rafbækur Allt að 60% ódýrara fyrir námsmenn að nýta sér rafbóksölu eða leigu. Samstarf 30.8.2021 16:01
Stuðningsaðili óskar eftir samtali við KSÍ vegna frétta síðustu daga Coca-Cola á Íslandi, CCEP, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Knattspyrnusambands Íslands í íslensku samfélagi í kjölfar frétta síðustu daga. Hefur félagið í bréfi óskað eftir samtali við fulltrúa KSÍ um málið. Viðskipti innlent 30.8.2021 13:54
Börnum bannað að spila meira en þrjá tíma í viku í Kína Börn í Kína mega einungis spila netleiki í þrjá tíma á viku. Leikjafyrirtækjum hefur verið gert að ganga úr skugga um að börn geti ekki spilað slíka leiki nema frá klukkan átta til níu að kvöldi á föstudags, laugardags og sunnudagskvöldum. Viðskipti erlent 30.8.2021 13:25
Ráðinn viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera Datera hefur ráðið til sín Hjalta Má Einarsson sem viðskiptaþróunarstjóra og hefur hann þegar hafið störf. Viðskipti innlent 30.8.2021 11:43
Kafaði ofan í hvað einkenni ferðir Íslendinga til Kanarí „Það er alveg skýrt að fyrir Íslendinga hefur Kanarí fyrst og fremst aðdráttarafl vegna sólarinnar og strandanna. Það er miklu minni áhugi á menningartengdri ferðaþjónustu og söfnin, heldur en ég hafði fyrirfram gert ráð fyrir.“ Viðskipti innlent 30.8.2021 09:02
Á leið í útrás en allt hófst þetta í háskólanum „Við fórum af stað sem ungt teymi með ýmislegt ólært. Okkur vantaði meiri breidd í hópinn og höfðum ekki nægilega mikla þekkingu í sölu- og markaðstengdum málum, þar af leiðandi lentum við í byrjunarörðugleikum við að koma vörunni á markað. Þá tók við erfitt tímabil þar sem við misstum gott fólk frá okkur,“ segir Aðalheiður Hreinsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda LearnCove. „Þessum tíma fylgdi þó mikill lærdómur og við erum reynslunni ríkari ásamt því að hafa bætt við okkur öflugum einstaklingum í sölu- og markaðshliðinni. Við erum virkilega ánægð með breidd hópsins í dag og hversu vel hann nær saman,“ segir Aðalheiður. Atvinnulíf 30.8.2021 07:00
Vakin með knúsi en tjaldútilegurnar með eiginmanninum bestar Alma Dagbjört Möller landlæknir fær knús frá hundunum sínum þegar hún vaknar eldsnemma á morgnana og hlakkar alltaf til dagsins. Hún segir tjaldútilegu með eiginmanninum á hálendinu bestu leiðina til að aftengja sig frá daglegu amstri og í sumar fékk hún það nýja hlutverk að fara í morgungöngur með tvíburaömmustelpur í vagni. Í vinnunni gerir hún það sama og svo margir: Skrifar niður lista yfir helstu verkefni dagsins. Atvinnulíf 28.8.2021 10:01
Meðallaun hækkað um 204 prósent frá árinu 2000 Meðallaun á Íslandi hafa hækkað um 204% í íslenskum krónum á árunum 2000 til 2020 samkvæmt tölum OECD. Það er mun meiri hækkun en í nálægum löndum en næsta ríki í röðinni er Noregur með 114% hækkun í norskum krónum. Viðskipti innlent 27.8.2021 15:00
Stjórnendur Kviku greiddu 70 prósent lægri fjárhæðir fyrir hlutabréfin Sex æðstu stjórnendur Kviku banka seldu hlutabréf í bankanum fyrir hundruð milljóna króna á gengi dagsins í gær. Á sama tíma nýttu stjórnendur sér áskriftaréttindi og keyptu fyrir um hundrað og fimmtíu milljónir króna í bankanum. Almennir kaupendur greiddu þannig um þrisvar sinnum meira fyrir hlutabréfin í bankanum í gær en stjórnendurnir. Viðskipti innlent 27.8.2021 15:00
Origo kaupir í verslun á Akureyri til að mæta eftirspurn eftir Apple-vörum Origo hefur keypt 70% eignarhlut í Eldhafi sem er innflutningsaðili á Apple-vörum og rekur samnefnda verslun á Akureyri. Er markmiðið með kaupunum að auka breiddina í vöruúrvali Origo. Viðskipti innlent 27.8.2021 14:16
Eðvald fer fyrir nýrri deild Kviku Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn forstöðumaður hagdeildar á fjármálasviði Kviku banka en deildin er ný á fjármálasviði bankans. Viðskipti innlent 27.8.2021 13:27
Matvælastofnun varar við neyslu á þremur vörum frá Lýsi Matvælastofnun varar við neyslu þriggja fæðubótarefna frá Lýsi sem innihalda ólöglega varnarefnið etýlen oxíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni en Lýsi hefur innkallað allar framleiðslulotur af Sportþrennu, Lýsi Omega3 kalk/D-vítamín og Omega3 Calcium/Vitamin D. Viðskipti innlent 27.8.2021 13:01
Hugmyndir um eigin getu takmarkast af eigin hugarfari Ingvar Jónsson PPC markþjálfi hefur útskrifað yfir fjögurhundruð markþjálfa. Samstarf 27.8.2021 11:55
Hörður og Ólöf leiða nýjan viðskiptamiðil á Vísi Nýr miðill sem sérhæfir sig einkum í fréttum um íslenskt viðskiptalíf og efnahagsmál hefur göngu sína á Vísi á næstunni. Fyrir miðlinum fara þau Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir en auk þeirra kemur til starfa viðskiptablaðamaðurinn Þorsteinn Friðrik Halldórsson. Um verður að ræða fréttamiðil í áskrift. Viðskipti innlent 27.8.2021 11:02
Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum Samkomulag sem tæknirisinn Apple hefur gert við hóp hugbúnaðarfyrirtækja gerir þeim síðarnefndu kleift að rukka viðskiptavini snjallforrita þeirra beint í stað þess að nota greiðslukerfi Apple. Málaferli standa nú yfir þar sem Apple er sakað um samkeppnisbrot vegna viðskiptahátta forritaverslunar fyrirtækisins. Viðskipti erlent 27.8.2021 10:45
Skiptir máli að fá ferðamenn einnig um Egilsstaðaflugvöll Austfirðingar kalla eftir því að Egilsstaðaflugvöllur verði þróaður sem millilandaflugvöllur og þannig opnaðar fleiri gáttir fyrir ferðamenn inn í landið. Viðskipti innlent 27.8.2021 10:34
Vinnustaðir fyrir og eftir Covid Um allan heim eru vinnustaðir að móta sér hugmyndir og stefnur um hvernig best er að haga til framtíðinni þar sem fjarvinna er orðin hluti af veruleika atvinnulífsins. BBC Worklife leitaði til nokkurra sérfræðinga eftir áliti á því hvaða breytingar við munum helst sjá í kjölfar Covid. Atvinnulíf 27.8.2021 07:00
Seldi launabónusinn fyrir 95 milljarða króna Tim Cook forstjóri Apple hagnaðist um 750 milljónir dollara eða 95 milljarða króna þegar hann seldi fimm milljónir hluta í fyrirtækinu, sem hann fékk sem launauppbót eftir að hafa verið forstjóri Apple í tíu ár. Viðskipti erlent 27.8.2021 06:38
Forstjóri Kviku meðal þeirra sem seldu bréf fyrir tugi milljóna Nokkrir af æðstu stjórnendum Kviku seldu bréf fyrir tugi milljóna króna í dag. Marínó Örn Tryggvason forstjóri keypti 2,5 milljónir hluta á genginu 7,16 krónur á hlutinn en seldi á sama tíma fjórar milljónir hluta á 23,5 krónur á hlutinn. Hann kom út í 70 milljónum í plús með viðskiptum dagsins. Viðskipti innlent 26.8.2021 20:01
Stofnandi Creditinfo ráðinn forstjóri SaltPay Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, hefur verið ráðinn nýr forstjóri greiðslumiðlunarfyrirtækisins SaltPay. Áður sat Reynir í stjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 26.8.2021 18:27
Tjörvi hættir eftir nítján ár hjá Bændasamtökunum Tjörvi Bjarnason, sviðstjóri útgáfu- og kynningarsviðs Bændasamtakanna, hefur sagt upp störfum eftir nítján ár hjá samtökunum. Hann hefur stýrt rekstri Bændablaðsins í fjölda ára og unnið sem almannatengill fyrir bændur svo fátt eitt sé nefnt. Viðskipti innlent 26.8.2021 18:26