Viðskipti innlent „Þetta er alvöru skrímsli“ Magnús Sverrir Þorsteinsson, fyrrverandi fótboltakappi og nú forstjóri bílaleigu í Reykjanesbæ var að kaupa sér 60 milljóna króna jeppa. Viðskipti innlent 21.2.2024 11:56 Hægði verulega á vexti ferðaþjónustunnar undir lok árs Töluvert hægði á vexti ferðaþjónustunnar síðustu tvo mánuði ársins 2023. Velta jókst töluvert í flestum atvinnugreinum á árinu samanborið við 2022 þar sem ferðaþjónustan varð um tíma stærsta atvinnugrein landsins og óx um tuttugu prósent ásamt fasteignaviðskiptum og byggingarstarfsemi. Viðskipti innlent 21.2.2024 10:29 Össur stofnar móðurfélagið Embla Medical Stjórn Össurar hf. hefur lagt til við aðalfund Össurar sem fram fer í næsta mánuði að móðurfélag félagsins taki upp nafnið Embla Medical hf. Viðskipti innlent 21.2.2024 07:45 Hagnaður Símans dróst saman um tæpan þriðjung milli ára Rekstarhagnaður Símans var 2.079 milljónir króna árið 2023 samanborið við 2.945 milljónir króna árið 2022. Viðskipti innlent 20.2.2024 22:38 Forstjóri Play segir gott að fá sterka traustsyfirlýsingu Forstjóri Play segir stærstu hluthafa flugfélagsins hafa sent traustsyfirlýsingu með vilyrðum um 2,6 milljarða króna nýtt hlutafé. Hann segir að þótt umræðan um fjárhagsstöðuna hafi verið óþægileg hafi hún hvorki skaðað félagið né komið niður á bókunum. Viðskipti innlent 20.2.2024 21:21 „Það hefur nákvæmlega enginn komið að máli við mig“ Magnús Ragnarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir góðan tímapunkt að hætta núna eftir tíu ár í starfi og gott að hætta á eigin forsendum. Þá segir hann engan hafa komið að máli við hann varðandi neitt framboð. Viðskipti innlent 20.2.2024 17:56 Magnús hættur hjá Símanum Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Símanum. Magnús hefur setið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2014 auk þess að hafa áður starfað hjá fyrrum dótturfélagi Símans Skjánum á árunum 2004-2007. Viðskipti innlent 20.2.2024 16:52 Síminn greiðir Sýn sautján milljónir í bætur Síminn þarf að greiða Sýn á sautjándu milljón króna í bætur vegna brots á fjölmiðlalögum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Viðskipti innlent 20.2.2024 13:22 Play komið með vilyrði fyrir 2,6 milljörðum króna Flugfélagið Play hefur safnað vilyrðum fyrir 2,6 milljörðum króna í áformi nýs hlutafjár með því skilyrði að félaginu takist að safna í heildina að lágmarki fjórum milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 20.2.2024 09:33 Gamla Straumi-Burðarás formlega slitið Félaginu ALMC hf., sem hét áður Straumur-Burðarás og var um tíma stærsti fjárfestingarbanki landsins, hefur formlega verið slitið. Skilanefnd samþykkti kröfur upp á um 25 milljónir króna en lýstar kröfur námu um 48 milljónum króna. Samþykktar kröfur voru greiddar að fullu. Viðskipti innlent 19.2.2024 23:53 Fréttamaður spreytir sig á græjunni sem allir eru að tala um Nokkur eintök af nýjum sýndarveruleikagleraugum Apple, sem tröllriðið hafa samfélagsmiðlum, eru komin til landsins og verða til sýnis í verslunum Nova. Tæknin sem notuð er til að stjórna gleraugunum er afar framúrstefnuleg, eins og fréttamaður komst að við prófun í dag. Viðskipti innlent 19.2.2024 19:31 Fosshótel, Berjaya og Icelandair sitja uppi með Covid-skuldir Fosshótel Reykjavíkur, Icelandair Group og Berjaya Hotels Iceland þurfa að greiða húsaleigu þrátt fyrir að hafa lokað sjoppunni í marga mánuði á meðan kórónuveirufaraldrinum stóð. Um er að ræða greiðslur sem nema á annað hundrað milljóna króna. Viðskipti innlent 19.2.2024 16:30 Reginn býðst til að að liðka fyrir yfirtöku með sölu eigna Fasteignafélagið Reginn óskaði á föstudag eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið í tengslum við fyrirhugaðrar yfirtöku á öllu hlutafé Eikar fasteignafélags. Reginn býðst til að selja eignir til að vinna gegn skaðlegum áhrifum á samkeppni vegna samrunans. Viðskipti innlent 19.2.2024 14:30 Gjaldþrotið nam 124 milljónum króna Gjaldþrot verslunarinnar Eins og fætur toga sem varð gjaldþrota í mars í fyrra en er nú rekin af nýjum aðilum nam 124 milljónum króna. Greint er frá uppgjöri þrotabúsins í Lögbirtingablaðinu í dag. Viðskipti innlent 19.2.2024 12:21 Landsréttur á því að Síminn hafi ekki brotið lög með sölu enska boltans Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæðum sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport. Viðskipti innlent 16.2.2024 17:11 Bláa lónið opnar á morgun Bláa lónið opnar aftur á morgun. Opnunin mun ná til allra rekstrareininga lónsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lónsins. Viðskipti innlent 15.2.2024 18:29 Líklega engin stór loðnutorfa fyrir suðaustan Loðnutorfan sem skipstjórar þriggja uppsjávarveiðiskipa sáu undan Suðausturlandi í vikunni er ekki stór að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknarstofnunar. Ekki er komin niðurstaða en engar vísbendingar benda til þess að eitthvað stórt sé þarna á ferðinni. Viðskipti innlent 15.2.2024 16:30 Aron Ólafsson nýr markaðsstjóri Solid Clouds Aron Ólafsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Solid Clouds en hann var áður framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 11:22 Mikill meirihluti áhrifavalda merkir auglýsingar sjaldan Einungis einn af hverjum fimm áhrifavöldum merkir reglulega auglýsingar á samfélagsmiðlum sínum sem slíkar. 26 íslenskir áhrifavaldar voru til skoðunar. Viðskipti innlent 15.2.2024 11:00 Samkeppniseftirlitið tekur samninga við stórnotendur til rannsóknar Samkeppniseftirlitið hefur hafið formlega rannsókn á því hvort tiltekið ákvæði í samningum Landsvirkjunar við stórnotendur standist ákvæði samkeppnislaga og samkeppnisreglur EES-samningsins. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:43 Ísey Skyr Bar og Nesti opna í Krónunni Granda Tveir veitingastaðir, Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt, hafa verið opnaðir innan Krónunnar á Granda. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:42 Taka höndum saman gegn ólöglegri dreifingu sjónvarpsefnis Sýn og Síminn hafa skrifað undir samstarfssamning við samtökin NCP (Nordic Content Protection) um stafræna réttindavernd. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:09 Kaupa gagnaver í Finnlandi Borealis Data Center, sem rekur þrjú gagnaver hér á landi, hefur fest kaup á á gagnaveri í Kajaani í Norður-Finnlandi sem verður fyrsta starfsstöð félagsins erlendis. Viðskipti innlent 15.2.2024 09:08 Byltingarkennd en líka þung, einmanaleg og óhemju dýr Sýndarveruleikagleraugu frá Apple, sem nýkomin eru í verslanir í Bandaríkjunum, eru táknmynd þess sem koma skal, að mati sérfræðings. Tæknin sé mun þróaðri en hjá keppinautum. En vandamál hafa einnig gert vart við sig; gleraugun hafa reynst bæði þung og verið einmannaleg. Viðskipti innlent 15.2.2024 09:01 Hagkvæmara að leigja en eiga á höfuðborgarsvæðinu Töluvert hagkvæmara er að leigja heldur en eiga á höfuðborgarsvæðinu þessa stundina, þar sem mánaðarlegar greiðslur af óverðtryggðum lánum eru allt að 40 prósentum umfram leiguverði. Viðskipti innlent 15.2.2024 08:38 Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar. Viðskipti innlent 14.2.2024 21:31 Einar Oddur og Unnsteinn til Lögmáls Lögmennirnir Einar Oddur Sigurðsson og Unnsteinn Örn Elvarsson hafa bæst í hóp eigenda lögmannsstofunnar Lögmáls. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 14.2.2024 20:21 Starfsmenn Ægis í Grindavík teknir af launaskrá: Vilja svör um framhaldið Starfsmönnum Ægis sjávarfangs í Grindavík hafa verið teknir af launaskrá og settir á úrræði ríkisins. Um er að ræða álíka úrræði og Vísir í Grindavík er að beita. Viðskipti innlent 14.2.2024 17:52 Bara tala hlaut Menntasprotann 2024 Bara tala hlaut í dag Menntasprotann árið 2024 en Menntadagur atvinnulífsins var haldinn í ellefta sinn í morgun. Þá var Elko valið Menntafyrirtæki ársins. Viðskipti innlent 14.2.2024 14:22 Gjaldþrot Cyren upp á 238 milljónir Lýstar kröfur í þrotabú netöryggisfyrirtækisins Cyren námu 238,5 milljónum króna auk dráttar vaxta. Tæpar tólf milljónir fengust greiddar upp í forgangskröfur eða um 5,2 prósent. Rekstur félagsins gekk að sögn yfirmanns afar vel en þrot erlends móðurfélags olli gjaldþrotinu. Viðskipti innlent 14.2.2024 13:49 « ‹ 31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 334 ›
„Þetta er alvöru skrímsli“ Magnús Sverrir Þorsteinsson, fyrrverandi fótboltakappi og nú forstjóri bílaleigu í Reykjanesbæ var að kaupa sér 60 milljóna króna jeppa. Viðskipti innlent 21.2.2024 11:56
Hægði verulega á vexti ferðaþjónustunnar undir lok árs Töluvert hægði á vexti ferðaþjónustunnar síðustu tvo mánuði ársins 2023. Velta jókst töluvert í flestum atvinnugreinum á árinu samanborið við 2022 þar sem ferðaþjónustan varð um tíma stærsta atvinnugrein landsins og óx um tuttugu prósent ásamt fasteignaviðskiptum og byggingarstarfsemi. Viðskipti innlent 21.2.2024 10:29
Össur stofnar móðurfélagið Embla Medical Stjórn Össurar hf. hefur lagt til við aðalfund Össurar sem fram fer í næsta mánuði að móðurfélag félagsins taki upp nafnið Embla Medical hf. Viðskipti innlent 21.2.2024 07:45
Hagnaður Símans dróst saman um tæpan þriðjung milli ára Rekstarhagnaður Símans var 2.079 milljónir króna árið 2023 samanborið við 2.945 milljónir króna árið 2022. Viðskipti innlent 20.2.2024 22:38
Forstjóri Play segir gott að fá sterka traustsyfirlýsingu Forstjóri Play segir stærstu hluthafa flugfélagsins hafa sent traustsyfirlýsingu með vilyrðum um 2,6 milljarða króna nýtt hlutafé. Hann segir að þótt umræðan um fjárhagsstöðuna hafi verið óþægileg hafi hún hvorki skaðað félagið né komið niður á bókunum. Viðskipti innlent 20.2.2024 21:21
„Það hefur nákvæmlega enginn komið að máli við mig“ Magnús Ragnarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir góðan tímapunkt að hætta núna eftir tíu ár í starfi og gott að hætta á eigin forsendum. Þá segir hann engan hafa komið að máli við hann varðandi neitt framboð. Viðskipti innlent 20.2.2024 17:56
Magnús hættur hjá Símanum Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Símanum. Magnús hefur setið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2014 auk þess að hafa áður starfað hjá fyrrum dótturfélagi Símans Skjánum á árunum 2004-2007. Viðskipti innlent 20.2.2024 16:52
Síminn greiðir Sýn sautján milljónir í bætur Síminn þarf að greiða Sýn á sautjándu milljón króna í bætur vegna brots á fjölmiðlalögum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Viðskipti innlent 20.2.2024 13:22
Play komið með vilyrði fyrir 2,6 milljörðum króna Flugfélagið Play hefur safnað vilyrðum fyrir 2,6 milljörðum króna í áformi nýs hlutafjár með því skilyrði að félaginu takist að safna í heildina að lágmarki fjórum milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 20.2.2024 09:33
Gamla Straumi-Burðarás formlega slitið Félaginu ALMC hf., sem hét áður Straumur-Burðarás og var um tíma stærsti fjárfestingarbanki landsins, hefur formlega verið slitið. Skilanefnd samþykkti kröfur upp á um 25 milljónir króna en lýstar kröfur námu um 48 milljónum króna. Samþykktar kröfur voru greiddar að fullu. Viðskipti innlent 19.2.2024 23:53
Fréttamaður spreytir sig á græjunni sem allir eru að tala um Nokkur eintök af nýjum sýndarveruleikagleraugum Apple, sem tröllriðið hafa samfélagsmiðlum, eru komin til landsins og verða til sýnis í verslunum Nova. Tæknin sem notuð er til að stjórna gleraugunum er afar framúrstefnuleg, eins og fréttamaður komst að við prófun í dag. Viðskipti innlent 19.2.2024 19:31
Fosshótel, Berjaya og Icelandair sitja uppi með Covid-skuldir Fosshótel Reykjavíkur, Icelandair Group og Berjaya Hotels Iceland þurfa að greiða húsaleigu þrátt fyrir að hafa lokað sjoppunni í marga mánuði á meðan kórónuveirufaraldrinum stóð. Um er að ræða greiðslur sem nema á annað hundrað milljóna króna. Viðskipti innlent 19.2.2024 16:30
Reginn býðst til að að liðka fyrir yfirtöku með sölu eigna Fasteignafélagið Reginn óskaði á föstudag eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið í tengslum við fyrirhugaðrar yfirtöku á öllu hlutafé Eikar fasteignafélags. Reginn býðst til að selja eignir til að vinna gegn skaðlegum áhrifum á samkeppni vegna samrunans. Viðskipti innlent 19.2.2024 14:30
Gjaldþrotið nam 124 milljónum króna Gjaldþrot verslunarinnar Eins og fætur toga sem varð gjaldþrota í mars í fyrra en er nú rekin af nýjum aðilum nam 124 milljónum króna. Greint er frá uppgjöri þrotabúsins í Lögbirtingablaðinu í dag. Viðskipti innlent 19.2.2024 12:21
Landsréttur á því að Síminn hafi ekki brotið lög með sölu enska boltans Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæðum sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport. Viðskipti innlent 16.2.2024 17:11
Bláa lónið opnar á morgun Bláa lónið opnar aftur á morgun. Opnunin mun ná til allra rekstrareininga lónsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lónsins. Viðskipti innlent 15.2.2024 18:29
Líklega engin stór loðnutorfa fyrir suðaustan Loðnutorfan sem skipstjórar þriggja uppsjávarveiðiskipa sáu undan Suðausturlandi í vikunni er ekki stór að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknarstofnunar. Ekki er komin niðurstaða en engar vísbendingar benda til þess að eitthvað stórt sé þarna á ferðinni. Viðskipti innlent 15.2.2024 16:30
Aron Ólafsson nýr markaðsstjóri Solid Clouds Aron Ólafsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Solid Clouds en hann var áður framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 11:22
Mikill meirihluti áhrifavalda merkir auglýsingar sjaldan Einungis einn af hverjum fimm áhrifavöldum merkir reglulega auglýsingar á samfélagsmiðlum sínum sem slíkar. 26 íslenskir áhrifavaldar voru til skoðunar. Viðskipti innlent 15.2.2024 11:00
Samkeppniseftirlitið tekur samninga við stórnotendur til rannsóknar Samkeppniseftirlitið hefur hafið formlega rannsókn á því hvort tiltekið ákvæði í samningum Landsvirkjunar við stórnotendur standist ákvæði samkeppnislaga og samkeppnisreglur EES-samningsins. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:43
Ísey Skyr Bar og Nesti opna í Krónunni Granda Tveir veitingastaðir, Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt, hafa verið opnaðir innan Krónunnar á Granda. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:42
Taka höndum saman gegn ólöglegri dreifingu sjónvarpsefnis Sýn og Síminn hafa skrifað undir samstarfssamning við samtökin NCP (Nordic Content Protection) um stafræna réttindavernd. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 15.2.2024 10:09
Kaupa gagnaver í Finnlandi Borealis Data Center, sem rekur þrjú gagnaver hér á landi, hefur fest kaup á á gagnaveri í Kajaani í Norður-Finnlandi sem verður fyrsta starfsstöð félagsins erlendis. Viðskipti innlent 15.2.2024 09:08
Byltingarkennd en líka þung, einmanaleg og óhemju dýr Sýndarveruleikagleraugu frá Apple, sem nýkomin eru í verslanir í Bandaríkjunum, eru táknmynd þess sem koma skal, að mati sérfræðings. Tæknin sé mun þróaðri en hjá keppinautum. En vandamál hafa einnig gert vart við sig; gleraugun hafa reynst bæði þung og verið einmannaleg. Viðskipti innlent 15.2.2024 09:01
Hagkvæmara að leigja en eiga á höfuðborgarsvæðinu Töluvert hagkvæmara er að leigja heldur en eiga á höfuðborgarsvæðinu þessa stundina, þar sem mánaðarlegar greiðslur af óverðtryggðum lánum eru allt að 40 prósentum umfram leiguverði. Viðskipti innlent 15.2.2024 08:38
Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar. Viðskipti innlent 14.2.2024 21:31
Einar Oddur og Unnsteinn til Lögmáls Lögmennirnir Einar Oddur Sigurðsson og Unnsteinn Örn Elvarsson hafa bæst í hóp eigenda lögmannsstofunnar Lögmáls. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 14.2.2024 20:21
Starfsmenn Ægis í Grindavík teknir af launaskrá: Vilja svör um framhaldið Starfsmönnum Ægis sjávarfangs í Grindavík hafa verið teknir af launaskrá og settir á úrræði ríkisins. Um er að ræða álíka úrræði og Vísir í Grindavík er að beita. Viðskipti innlent 14.2.2024 17:52
Bara tala hlaut Menntasprotann 2024 Bara tala hlaut í dag Menntasprotann árið 2024 en Menntadagur atvinnulífsins var haldinn í ellefta sinn í morgun. Þá var Elko valið Menntafyrirtæki ársins. Viðskipti innlent 14.2.2024 14:22
Gjaldþrot Cyren upp á 238 milljónir Lýstar kröfur í þrotabú netöryggisfyrirtækisins Cyren námu 238,5 milljónum króna auk dráttar vaxta. Tæpar tólf milljónir fengust greiddar upp í forgangskröfur eða um 5,2 prósent. Rekstur félagsins gekk að sögn yfirmanns afar vel en þrot erlends móðurfélags olli gjaldþrotinu. Viðskipti innlent 14.2.2024 13:49